Færir sig um set í Lundúnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. janúar 2026 09:00 Brennan Johnson var einn besti leikmaður Tottenham á síðasta tímabili en hefur lítið spilað á þessu tímabili. Brennan Johnson mun gangast undir læknisskoðun hjá Crystal Palace í dag og kveðja Tottenham, sem samþykkti 35 milljóna punda tilboð í velska framherjann.
Crystal Palace vonast til þess að ganga alveg frá félagaskiptunum í dag svo Johnson geti tekið þátt í leik liðsins gegn Newcastle á sunnudag. Johnson er 24 ára gamall og var markahæsti leikmaður Tottenham á síðasta tímabili með 18 mörk í öllum keppnum, þeirra á meðal markið sem tryggði Tottenham sigur í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Þrátt fyrir það er hann ekki hluti af framtíðaráformum félagsins og danska þjálfarans Thomas Frank. Félagaskiptin hafa legið í loftinu síðan fyrir áramót og nú virðist allt frágengið, nema læknisskoðun, og Johnson mun eignast nýjan heimavöll í Suður-Lundúnum eftir að hafa spilað í Norður-Lundúnum síðan 2023. Johnson er fæddur í Englandi en á ættir að rekja til Wales og spilar fyrir velska landsliðið. Einhverjir stuðningsmenn íslenska landsliðsins muna eflaust eftir markinu sem hann skoraði á Laugardalsvelli í október 2024, þegar Logi Tómasson tryllti lýðinn í 2-2 jafntefli. Tottenham gerði markalaust jafntefli við Brentford í gærkvöld og liðinu skorti ákefð sóknarlega en eftir leik sagði þjálfarinn Thomas Frank að bráðum myndu Lucas Bergvall, Xavi Simons og Dominic Solanke snúa aftur úr meiðslum. Auk þess myndi félagið skoða sig um á félagaskiptamarkaðnum.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Crystal Palace FC Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Sport Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Sport „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Handbolti Fleiri fréttir „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Sjá meira