Róbert hættir sem forstjóri Alvotech Árni Sæberg skrifar 6. janúar 2026 12:23 Róbert verður áfram stjórnarformaður félagsins og það í fullu starfi. Vísir/Vilhelm Í lok fyrsta ársfjórðungs ársins mun Róbert Wessman láta af störfum sem forstjóri Alvotech. Hann mun þó starfa áfram sem stjórnarformaður félagsins í fullu starfi.
Þetta segir í tilkynningu Alvotech til Kauphallar. Þar segir að breytingar á yfirstjórn félagsins sem eru fram undan komi að lokinni vinnu stjórnar sem staðið hafi yfir um nokkurt skeið. Róbert hafi gegnt bæði starfi stjórnarformanns frá stofnun félagsins árið 2013 og starfi forstjóra síðan í ársbyrjun 2023. Í lok fyrsta árfjórðungs þessa árs muni Róbert vera starfandi stjórnarformaður í fullu starfi og Lisa Graver taka við sem forstjóri félagsins. „Þegar ég tók að mér starf forstjóra í ársbyrjun 2023, var ætlunin að styrkja daglegan rekstur og undirbúa félagið vel undir nýtt tímabil í sögu þess. Það var ekki markmiðið að hafa hlutverk stjórnarformanns og forstjóra á einni hendi til langs tíma. Ég hef unnið í töluverðan tíma með stjórn félagsins að því að finna nýjan forstjóra. Við erum nú að hefja nýjan áfanga í þróun félagsins, með vaxandi úrvali lyfja á markaði og aukinni útbreiðslu. Afar mikilvægt er að stjórnendur félagsins búi á Íslandi þar sem helstu þættir framleiðslunnar fara fram. Lisa hefur verið traustur samstarfsfélagi minn í meira en 20 ár. Hún er með verðmæta leiðtogareynslu og djúpa þekkingu á þessum iðnaði. Lisa nýtur óskoraðs trausts stjórnar félagsins til að leiða áframhaldandi uppbyggingu Alvotech, sem hvílir á afar sterkum grunni,“ er haft eftir Róberti. Spenntur fyrir tækifærunum fram undan Sem starfandi stjórnarformaður og stærsti hluthafi félagsins muni hann áfram einbeita sér af alefli að því að tryggja velgengni félagsins. Hann ætli að beina kröftum sínum að stefnumótun, viðskiptaþróun, vali á næstu verkefnum í lyfjaþróun, samskiptum við alþjóðlega fjárfesta og góðum stjórnarháttum. „Við höfum byggt upp lyfjaþróun á heimsmælikvarða, frábæra framleiðsluaðstöðu og erum með 30 lyf í þróun, sem er eitt verðmætasta safn lyfja í þróun í okkar geira. Nú eru fimm fyrstu hliðstæðurnar komnar á markað. Ég er ótrúlega spenntur fyrir þeim miklu tækifærum sem fram undan eru hjá Alvotech.“ Mikill heiður „Mér er það mikill heiður að fá tækifæri til þess að gegna stöðu forstjóra Alvotech, á þessum mikilvæga tíma í sögu félagsins. Alvotech hefur byggt upp fullkomna aðstöðu til lyfjaþróunar og -framleiðslu, félagið er með skýra stefnu, frábæra menningu og úrvals starfsfólk. Ég hef dvalið langdvölum á Íslandi undanfarna tvo áratugi og er full tilhlökkunar til þess að flytjast til landsins og vinna náið með leiðtogateyminu og öðru samstarfsfólki við að halda áfram að hrinda í framkvæmd metnaðarfullum áformum félagsins um aukinn vöxt á næstu árum,“ er haft eftir Lisu Graver, tilvonandi forstjóra Alvotech. Í tilkynningu segir að Lisa sé með yfirgripsmikla leiðtoga- og rekstrarreynslu í lyfjageiranum og hafi starfað með Róberti í meira en tuttugu ár. Hún hafi verið forstjóri Alvogen í Bandaríkjunum þar til félagið var selt til Lotus Pharmaceuticals í desember síðastliðnum. Hún hafi setið í stjórn Alvotech frá því að félagið var skráð á markað í Bandaríkjunum í júní 2022. Róbert og Lisa muni vinna með leiðtogateymi félagsins á næstu mánuðum að því að tryggja að breytingarnar gangi vel. Lisa muni ganga úr stjórn Alvotech þegar hún tekur formlega við forstjórastarfinu.
Alvotech Kauphöllin Vistaskipti Líftækni Lyf Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira