„Gabi vildi ekki gera honum neitt slæmt“ Sindri Sverrisson skrifar 8. janúar 2026 23:16 Conor Bradley og Gabriel Martinelli í baráttunni í London í kvöld. Getty/John Walton Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að töfraaugnablik hefði þurft til að brjóta ísinn í stórleiknum við Liverpool í kvöld. Hann varði Gabriel Martinelli sem sakaður var um slæma framkomu í lok leiks.
Ekkert mark var skorað í leiknum og er Arsenal því nú með sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar, á Manchester City og Aston Villa. Arsenal var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik í kvöld en átti svo ekki skot á mark í seinni hálfleik fyrr en í uppbótartímanum. „Við vitum að þetta snýst um smáatriði. Þetta voru mjög ólíkir hálfleikir. Í þeim fyrri höfðum við mikla stjórn, sköpuðum stór tækifæri en náðum ekki að finna réttu sendinguna til að skora. Þetta var meira basl í seinni hálfleik. Svona leikur hefði þurft töfraaugnablik eins og á Anfield þegar Szoboszlai skoraði, og þeir unnu, en í dag gerðist það ekki,“ sagði Arteta sem virtist þó ekki svo ósáttur. „Við vorum að koma úr mjög krefjandi leikjadagskrá eftir þessa síðustu sex leiki yfir jólin og við höfum komið út úr þeim í mjög sterkri stöðu,“ sagði Arteta. Hann var svo spurður út í lætin undir lok leiks, þegar Gabriel Martinelli lét boltann falla á meiddan Conor Bradley og reyndi svo að ýta honum út fyrir hliðarlínu, áður en Bradley var borinn á börum af velli. „Líklega vissi hann ekki [um meiðsli Bradley] því þekkjandi Gabi þá var enginn vilji þarna. Ég veit ekki hvað kom fyrir Conor en vonandi var það ekkert slæmt, en það er augljóst að Gabi vildi ekki gera honum neitt slæmt,“ sagði Arteta. Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool, sagði um sama atvik: „Ég sá að Conor sneri upp á hnéð. Ég veit ekki hvað kom fyrir hann, auðvitað var hann ekki að hugas um að tefja heldur var hann bara svo þjáður að hann gat ekki hugsað um hvar hann rúllaði og Gabriel kom þarna til að ýta honum af velli. Ég skil að menn vilji vinna, við vildum líka vinna, en ég held að heilsa leikmanna sé mikið mikilvægari en nokkuð annað,“ sagði Szoboszlai.
Enski boltinn Tengdar fréttir Arsenal með sex stiga forskot eftir blautan slag Þrátt fyrir að sigurgöngu Arsenal hafi lokið í kvöld er liðið komið með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir markalaust jafntefli í stórleiknum gegn Liverpool í Lundúnum. 8. janúar 2026 21:40 Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira
Arsenal með sex stiga forskot eftir blautan slag Þrátt fyrir að sigurgöngu Arsenal hafi lokið í kvöld er liðið komið með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir markalaust jafntefli í stórleiknum gegn Liverpool í Lundúnum. 8. janúar 2026 21:40