Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Samúel Karl Ólason skrifar 9. janúar 2026 16:00 Mikið magn af rusli og braki hrundi yfir sorpvinnslustöð. AP/Jacqueline Hernandez Að minnsta kosti tveir eru látnir og 36 er saknað eftir að fjall úr rusli og braki hrundi yfir sorpvinnslustöð á ruslahaug á Filippseyjum. Flóð rusls og braks flæddi yfir hús og eru margir sagðir hafa lokast inni. Þrettán var bjargað í nótt en einn þeirra lést í.
Allir þeir sem eru látnir eða er saknað störfuðu í sorpvinnslustöðinni. Björgunarsveitir voru að störfum við að reyna að grafa fólkið út í dag, samkvæmt AP fréttaveitunni. Er notast við stórar vinnuvélar til að leita að fólkinu á meðan fjölskyldur þeirra sem saknað er fylgjast með. Samkvæmt starfsmanni sem rætt var við hrundi ruslfjallið skyndilega og í góðu veðri. Jaylord Antigua var á skrifstofu sinni þegar rusl flæddi þar inn en honum tókst að skríða gegnum ruslið og sleppa úr húsinu. „Ég sá ljós og skreið í áttina að því í flýti, því ég óttaðist frekari skriður,“ sagði Antigua. Ruslahaugar sem þessir hafa lengi valdið áhyggjum víðs vegar í Filippseyjum. Bæði vegna skorts á öryggi og vegna mögulegrar mengunar. Árið 2000 hrundi stærðarinnar haugur af rusli yfir kofabyggð í úthverfi Manila, en þá hafði veður verið vont í nokkra daga. Eldur kviknaði í skriðunni og rúmlega tvö hundruð manns létu lífið.
Filippseyjar Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira