Christiane Amanpour mun kveðja CNN Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. október 2026 21:05 Amanpour ásamt Angelu Merkel fyrrverandi kanslara Þýskalands á góðri stundu árið 2019. EPA/HAYOUNG JEON Einn frægasti fréttamaður veraldar Christiane Amanpour hefur tilkynnt að hún muni kveðja bandarísku sjónvarpsstöðina CNN á næsta ári. Hún tilkynnti þetta í sérstöku ávarpi sem hún birti á samfélagsmiðlum en Amanpour hefur verið á skjánum í 43 ár.
Hin 68 ára gamla Amanpour er margverðlaunaður blaðamaður sem flutt hefur fréttir af helstu átakasvæðum víða um heim og hefur hún starfað sem aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum. Hún hóf störf hjá CNN árið 1983 og stýrt eigin viðtalsþætti á hverju kvöldi síðan árið 2009. Örstutt er síðan fréttakonan heimsótti Ísland en hún sótti friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í síðustu viku. „Eftir margra mánaða umhugsun og nokkrar svefnlausar nætur hef ég ákveðið að skilja við CNN, félaga minn í 43 frábær ár!“ segir fréttakonan meðal annars í ávarpi sínu. Hún segist hlakka til þess að láta að sér kveða í áhugaverðum nýjum verkefnum í framtíðinni en tekur fram að hún muni halda áfram að halda með CNN og sögu þess þar sem sjálfstæð blaðamennska sé lykilþráður. Hún hvatti fylgjendur sína til þess að vera ávallt sannsögul en ekki hlutlaus. Variety hefur eftir Mark Thompson stjórnarformanni CNN að kollegar Amanpour muni sjá á eftir henni. Hann hafi rætt málið við Amanpour undanfarna mánuði og þau loks komist að samkomulagi um að þetta væri rétti tímapunktur fyrir breytngar. Variety lætur þess getið í umfjöllun sinni um brotthvarf Amanpour að það komi á sama tíma og CNN fari undir nýtt eignarhald bandaríska fyrirtækisins Skydance. Amanpour hafi lýst því yfir í maí að hún hefði áhyggjur af eignarhaldi Skydance á sjónvarpsstöðinni CBS News. „Ég mun hætta með daglega þætti mína á CNN og PBS í lok þessa árs, en halda áfram með vikulegan þátt á CNN fram í maí og vinna að hnökralausum umskiptum fram í júní,“ segir Amanpour. Fram kemur í umfjölluninni að hún muni áfram vinna að sjálfstæðu hlaðvarpi sínu „Ex-Files“, sem hún stýrir ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Jamie Rubin, fyrrverandi embættismanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Bíó og sjónvarp Fjölmiðlar Bandaríkin Tímamót Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira