Stoltur af litla bróður eftir sögulegt afrek Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 14:50 Bræðurnir John og Wayne Rooney voru léttir eftir magnaðan sigur Macclesfield á Crystal Palace. Martin Rickett/PA Images via Getty Images Enskir fótboltasérfræðingar fara fögrum orðum um lið Macclesfield og magnað afrek liðsins er það sló ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace úr keppni í FA-bikarnum. Einn sérfræðinganna tengist liðinu meira en aðrir.
Macclesfield er í sjöttu efstu deild og er lægst skrifaða liðið sem komst í 3. umferð bikarsins. Á því stigi keppninnar mæta úrvalsdeildarliðin til leiks og rómantík keppninnar í hámæli. Iðulega verða óvænt úrslit en sjaldan á þeirri stærðargráðu að svo lágt skrifað lið sparki ríkjandi meisturum úr keppni. Enda ætlaði allt um koll að keyra á heimavelli Macclesfield eftir leik og tilfinningarnar miklar. „Ég trúi þessu ekki. Við bjuggumst aldrei við því að vera í þessari stöðu. Við vorum hreint ótrúlegir frá fyrstu mínútu og mér fannst við verðskulda sigurinn. Ég gæti ekki verið stoltari af strákunum,“ sagði John Rooney, þjálfari Macclesfield, eftir leik. Sá er 35 ára gamall og hætti fótboltaiðkun í sumar til að taka við liðinu. Hann hafði einnig byrjað meistaraflokksferil sinn þar eftir að hafa verið leystur undan samningi sem ungur maður hjá Everton. Bróðir hans, Wayne Rooney, var á meðal áhorfenda á leik dagsins og starfaði í útsendingu breska ríkisútvarpsins, BBC, í kringum leikinn. Hann kvaðst stoltur af yngri bróður sínum. „Það er ótrúlegt að sjá yngri bróður minn afreka þetta. Hann hefur ekki verið þjálfari lengi. Ég er mjög stoltur af honum,“ sagði Rooney eldri eftir leik.
Enski boltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira