„Mjög hentugt að fá viku til að koma honum inn í hlutina“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. janúar 2026 12:33 Daníel Guðni bindur miklar vonir við komu Remy Martin til Keflavíkur. Remy Martin snýr aftur til leiks með Keflavík í kvöld, þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar í körfubolta.
Remy Martin var besti leikmaður Keflavíkur þegar liðið varð bikarmeistari árið 2024 en hann sleit síðan hásin í úrslitakeppni Bónus deildarinnar síðar um vorið. Hann hefur verið án félags síðan. „Hann hefur bara komið vel inn í hlutina, síðan hann mætti rétt fyrir áramót. Við erum búnir að hafa smá tíma núna, út af færða leiknum gegn Tindastóli, þannig að við höfum komið honum vel inn í þetta“ segir Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, um komu Remy Martin. Leiknum gegn Tindastóli var frestað vegna Evrópuleiks Stólanna, sem kom sér vel fyrir Keflavík. „Já þar sem við ákváðum að fara í breytingar á leikmönnum liðsins, þá var mjög hentugt að fá viku til að koma honum inn í hlutina. Það hefði verið skemmtilegra að koma honum inn í leikinn á móti ÍR [þann 4. janúar], en við komum því ekki í gegn. Þannig að hann verður bara klár í kvöld.“ Þegar Remy Martin spilaði síðast var hann einn albesti leikmaður landsins, en hann hefur ekki spilað körfuboltaleik í rúmt eitt og hálft ár, þannig að við hverju má búast frá honum? „Við bindum vonir við það [að hann sé jafn góður og þá]. Sérstaklega sóknarlega, en við viljum líka leggja mikið upp úr okkar varnarleik. Þegar maður var að þjálfa gegn Remy síðast, það var ekkert skemmtilegasta verkefni í heimi. Vonandi verður hann góður fyrir okkur í vetur og vor sérstaklega, við bindum allavega vonir það að hann komi með sín vopn að borðinu.“ Fyrsti leikurinn í rúma átján mánuði verður líka ekki af minni gerðinni, átta liða úrslitaleikur á Hlíðarenda. „Vissulega vill maður kannski sjá leikmanninn í alvöru átökum áður en maður fer inn í svona leik, en þetta er fagmaður fram í fingurgóma. Það vita líka allir leikmenn liðsins að þetta verður skemmtilegt verkefni í kvöld og menn vilja sýna sitt rétta andlit eftir frammistöðurnar gegn Val og ÍR í síðustu umferðum.“ Valur vann einmitt tuttugu stiga sigur gegn Keflavík í deildarleik liðanna fyrir mánuði síðan. Daníel segir varnarleikinn verða að vera betri í kvöld. „Við náðum að skora yfir níutíu stig en fengum full mikið af stigum á okkur. Við þurfum að þétta raðirnar, það er fókusinn hjá okkur.“ Remy Martin veitir viðtal í Sportpakka Sýnar í kvöld.
Bónus-deild karla Keflavík ÍF VÍS-bikarinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira