„Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Kjartan Kjartansson skrifar 29. janúar 2026 10:45 Stig Millehaugen var 56 ára þegar hann lést. Hann framdi að minnsta kosti tvö morð á löngum sakaferli og var grunaður um það þriðja. Norska lögreglan Norskur fangi sem afplánaði dóm fyrir morð og var lýst sem hættulegasta manni Noregs fannst látinn í klefa sínum í morgun. Lögregla rannsakar hvernig lát fangans bar að en hann var aðeins 56 ára gamall.
Ekki liggur fyrir hvað dró Stig Millehaugen, einn alræmdasta glæpamann Noregs, til bana. Hann fannst látinn í fangaklefa sínum í Kongsvinger-fangelsinu í Innlandet-fylki rétt fyrir klukkan átta að norskum tíma í morgun. Lögreglan segir að lík hans verði krufið og starfsmenn og samfangar Millehaugen sem voru í samneyti við hann verði yfirheyrðir, að því er segir í frétt norska blaðsins VG. Millehaugen varði nær öllum fullorðinsárum sínum í fangelsi fyrir morð, vopnað rán, þjófnað og bílstuld. Hann var dæmdur til 21 árs fangelsisvistar árið 2012 fyrir að hafa myrt leiðtoga glæpagengis gegn greiðslu. Millehaugen strauk ítrekað úr fangelsi, síðast árið 2022 þegar hann skilaði sér ekki aftur eftir dagsleyfi. Lýst var eftir honum alþjóðlega og dauðaleit gerð að honum í Noregi. Þegar Millehaugen strauk úr fangelsi árið 1992 skaut hann fangavörð til bana. Hann hlaut fangelsisdóm fyrir það morð árið 1993. Þá hafa norsk yfirvöld grunað Millehaugen um þriðja morðið frá því í fyrra, að þessu sinni á ræningja sem var skotinn til bana í Osló. Millehaugen var í leyfi frá fangelsinu þegar maðurinn fannst myrtur í skógi fyrir utan höfuðborgina. Hann neitaði sök en sagðist þó hafa orðið vitni að drápinu.
Noregur Andlát Erlend sakamál Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira