Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 30. janúar 2026 21:37 Daníel O. Einarsson formaður B.Í.L.S. og Bifreiðastjórafélagsins Frama fagnar drögum að reglugerð um leigubíla. Nú geti stéttin loks endurheimt virðingu sína. Vísir/Bjarni Samgöngustofa hefur fengið tvö hundruð ábendingar vegna leigubílaaksturs frá því ný lög tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. Formaður tveggja félaga bifreiðastjóra segir ófremdarástand hafa ríkt á markaðnum síðan og kvartanirnar margfalt fleiri. Hann fagnar drögum að nýrri reglugerð.
Frá því ný löggjöf um leigubílaakstur tók gildi árið 2023 hafa erjur og brot tengd stéttinni verið algengt umfjöllunarefni fjölmiðla. Daníel O. Einarsson formaður B.Í.L.S. og Bifreiðastjórafélagsins Frama varaði stjórnvöld við á sínum tíma. Þær áhyggjur hafi raungerst. „Farþegarnir eru alltaf að segja okkur sögur af því sem þeir hafa lent í. Það geta verið frásagnir af ofbeldi af hálfu bílstjóra, kvartanir vegna ágreinings og ákveðinni misbeitingu í verðlagi. Það er lýjandi að fá slíkar kvartanir og vita að við gerðum okkar besta til að koma í veg fyrir þessa löggjöf sem hefur skaðað leigubílaakstur á Íslandi,“ segir Daníel. Þúsundir kvartana vegna leigubílsstjóra Hægt er að senda Samgöngustofu ábendingar varðandi leigubílaakstur. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni barst 41 ábending árið 2023. 52 ábendingar árið 2024 og 95 á síðasta ári. Þrettán hafa verið sviptir leyfi til að aka leigubíl á tímabilinu. Daníel segist hafa fengið mun fleiri ábendingar á tímabilinu. „Síðustu þrjú ár eða frá því lögin um leigubílaakstur tóku gildi í apríl 2023 höfum við fengið um 20-30 kvartanir eftir hverja einustu helgi,“ segir Daníel. Það samsvarar um þrjú til fjögur þúsund kvörtunum á tímabilinu. Hann segir að fyrir lögin 2023 hafi um fimm hundruð manns verið með rekstrarleyfi fyrir leigubílum en sú tala hefur tvöfaldast síðan samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Ný reglugerð í smíðum Samgönguráðherra hefur nú birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerðarbreytingu um leigubílaakstur. Þar kemur meðal annars fram að leigubílar skuli vera auðkenndir með sérstöku skráningarmerki. Eftirlitshlutverk Samgöngustofu er aukið. Merkja þarf á áberandi hátt upphafs-, mínútu- og kílómetragjöld auk heildarverðs samkvæmt verðskrá. Loks kemur fram að hafi leigubílstjóri brotið ítrekað eða alvarlega gegn hátternisreglum leigubifreiðarstöðvar sé hægt að hafna þjónustu við hann. Daníel fagnar breytingunni. „Við erum ánægðir með þessar breytingar. Sérmerktar leigubifreiðar munu t.d. auka traust hjá almenningi því það er eftirlit með viðkomandi bílum. Með breytingunni mun stétt leigubílstjóra loksins geta endurheimt virðingu sína,“ segir Daníel.
Leigubílar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngur Ferðaþjónusta Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira