Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 11:15 Lína Birgitta er stödd í París þar sem línan verður sýnd. Aðsend. Lína Birgitta Sigurðardóttir, áhrifavaldur og eigandi fatamerkisins Define the Line, opnaði sig í hlaðvarpinu Viltu finna milljón? um kaupfíkn sína og stjórnlausa neyslu sem leiddu hana til Umboðsmanns skuldara þegar hún var rétt rúmlega tvítug og gjaldþrots nokkrum árum síðar.
Hrefna Björk Sverrisdóttir og Arnar Þór Ólafsson stýra fjármálaþættinum Viltu finna milljón? sem er sýndur á Sýn+ og eru samhliða því með samnefnda hlaðvarpsþætti þar sem þau ræða við ýmiss konar fólk um ólíkar hliðar fjármála. Lína Birgitta opnaði sig fyrst um kaupfíknina árið 2015 og ræddi þá við Sindra Sindrason í Ísland í dag. Lína var gestur Arnars og Hrefnu í öðrum þætti Viltu finna milljón? sem kom út 29. janúar síðastliðinn þar sem hún ræddi bæði um kaupfíknina sem stjórnaði lífi hennar, fyrsta gjaldþrotið hennar og hvernig hún náði að snúa við blaðinu. „Ég áttaði mig á því að það væri vandamál því ég þurfti að versla á hverjum einasta degi,“ segir Lína Birgitta um kaupfíknina. „Um leið og ég var búin að kaupa eitthvað ákveðið fyllti það upp í tómarúm. Ég áttaði mig síðan á því að það var vandamál sem ég þurfti að vinna úr og ég var að reyna að fela mig bak við það að versla hluti,“ segir hún. „Á hverjum einasta degi þurfti ég eitthvað og það skipti ekki máli hvort það voru ný rúmföt í Ikea eða eitthvað algjört rugl. Þú þarft ekkert að eiga endalaust af öllu.“ Á sínum tíma tók Lína niður heilan vegg og lét sérsmíða fyrir sig fataskáp til að koma öllum fötunum sínum fyrir. Hún lýsir því hvernig hún fór nánast aldrei heim án þess að þurfa að kíkja aftur í bílinn eftir pokum sem hún hafði verslað yfir daginn. „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lína segist hafa gert öll mistök sem hægt er að gera og til að fjármagna lífsstílinn leitaði hún í hrað- og smápeningalán sem hún nýtti í almenna neyslu, svo sem fatakaup og veitingahúsferðir. „Þessi tími er í svo mikilli móðu hjá mér. Það var hraðpeningalán og smápeningalán, það voru einhver tvö-þrjú fyrirtæki þarna. Ég nýtti mér það og var að kaupa skó og föt og út að borða,“ segir Lína. „Svo lendirðu á vegg,“ bætir hún við. „Það kemur alltaf að skuldadögum.“ Lína Birgitta er ein glæsilegasta samfélagsmiðlastjarna landsins.Lína Birgitta Hún hafi ekki verið búin að átta sig á því að hún glímdi við kaupfíkn og lifði með þá möntru að allt myndi reddast og leysast. Eftir að hafa komið heim úr útlandaferð til Ítalíu og Bretlands, þar sem hún hafði tvívegis látið bankann hækka yfirdráttarheimildina sína án þess að eiga fyrir því, endaði hún á að skila kreditkortinu til bankans. „Ég get hlegið að þessu í dag en ég var ekki hlæjandi þá,“ segir hún. „Allir sem eru peningavandræðum, sama hvort þú skuldar eða átt ekki nóg af pening út mánuðinn, finna fyrir ákveðinni skömm og þetta er ótrúlega vont. Það er erfitt að ræða þessa hluti upphátt.“ Hún segist hafa lært mikið af þessu tímabili í lífi sínu og hún lifi fyrir vikið allt öðru fjárhagslegu lífi í dag. Gjaldþrotið mikið högg fyrir egóið Eftir þessi bernskubrek liðu nokkur ár þar til Lína stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki. Hún hafi verið orðin ábyrgari í fjármálunum en veiktist þá alvarlega. Skuldirnar fóru þá að safnast upp og á endanum fór fyrirtækið í þrot. „Ég tala við mömmu, fer til hennar hágrátandi og segi: „Ég veit ekki hvað ég á að gera, er ég að fara í gjaldþrot. Er það ekki eitthvað sem fólk gerir?“,“ segir hún um viðbrögðin við stöðunni. Lína Birgitta var í Íslandi í dag í gærkvöldi og sagði þar sögu sína í tengslum við búlimíu. Lína fór þá með mömmu sinni til lögfræðings sem ráðlagði henni að lýsa sig persónulega gjaldþrota. Nokrum dögum síðar sá móðir hennar hins vegar auglýsingu hjá Umboðsmanni skuldara og fóru mæðgurnar í kjölfarið á fund þar sem hafi verið mjög dýrmætur. „Ég sá leiðina út, loka fyrirtækinu og það fer í þrot,“ segir hún og Í dag lítur hún á þetta tímabil sem sína dýrmætustu menntun; skóla sem ekkert nám hefði getað komið í staðinn fyrir. Reynslan hafi mótað reksturinn Sú reynsla að hafa staðið á barmi glötunar fjárhagslega hefur mótað rekstur Define the Line að sögn Línu. Hún leggur áherslu á að fyrirtækið sé með öllu skuldlaust og hún sé nú mjög varkár með hverja krónu. „Skortstilfinning er eitthvað sem ég vil bara ekki finna aftur,“ útskýrir hún og bætir við að hún hafi borgað sjálfri sé lágmarkslaun í mörg ár til að byggja félagið upp á heilbrigðum grunni. Lína segir að þeir sem eru í fjárhagserfiðleikum eigi ekki að stinga höfðinu í sandinn og skammast sín fyrir að leita sér hjálpar. Það sé alltaf leið út úr skuldunum.
Verslun Fíkn Fjölmiðlar Neytendur Tengdar fréttir Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Bergþóra Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur á TikTok, segist hafa verið svo langt leidd af kaupfíkn að hún faldi kvittanir í Cheerios-pökkum. Hún hefur sett sig í kaupbann þar sem eiginmaðurinn þarf að gefa grænt ljós á öll innkaup. Hún opnaði sig um kaupfíkn á samfélagsmiðlinum og ræddi áskorunina nánar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 3. desember 2025 14:07 Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Fatasöfnun Rauða krossins hefur tekið ákvörðun um að selja ekki vörur frá netverslunum eins og Shein og Temu í búðum sínum á Íslandi. Teymisstjóri söfnunarinnar segir gríðarlegt magn af slíkum fötum rata í söfnunargáma og oft séu þau jafnvel ónotuð. 18. ágúst 2024 19:10 Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Fleiri fréttir Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Sjá meira
Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Bergþóra Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur á TikTok, segist hafa verið svo langt leidd af kaupfíkn að hún faldi kvittanir í Cheerios-pökkum. Hún hefur sett sig í kaupbann þar sem eiginmaðurinn þarf að gefa grænt ljós á öll innkaup. Hún opnaði sig um kaupfíkn á samfélagsmiðlinum og ræddi áskorunina nánar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 3. desember 2025 14:07
Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Fatasöfnun Rauða krossins hefur tekið ákvörðun um að selja ekki vörur frá netverslunum eins og Shein og Temu í búðum sínum á Íslandi. Teymisstjóri söfnunarinnar segir gríðarlegt magn af slíkum fötum rata í söfnunargáma og oft séu þau jafnvel ónotuð. 18. ágúst 2024 19:10