Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Samúel Karl Ólason skrifar 9. febrúar 2026 14:28 Mona Juul ásamt Zhang Jun, þáverandi sendiherra Kína gagnvart Sameinuðu þjóðunum, á fundi öryggisráðsins árið 2021. EPA/JASON SZENES Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu.
Í frétt NRK segir að efnahagsbrotadeildin hafi meðal annars til rannsóknar hvort þau hafi grætt á stóðu Juul vegna samskipta þeirra við Epstein. Húsleit hefur verið framkvæmd á að minnsta kosti tveimur stöðum í dag vegna rannsóknarinnar. Lýst var yfir á laugardaginn að Juul hefði sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak. Það er eftir að fram kom í Epstein-skjölunum svokölluðu að barnaníðingurinn hafði þrýst á norskan mann til að selja hjónunum íbúð í Ósló undir markaðsvirði. Íbúðina keyptu þau árið 2018, á um helming þess sem hún var metin á. Seljandinn var kaupsýslumaðurinn Morits Skaugen hann sagði nýverið, samkvæmt Aftenposten, að hann hefði ekki viljað selja íbúðina en hann hefði gert það vegna þrýstings frá Epstein. Fyrirtæki Skaugens var þá gjaldþrota og hann stóð í ýmsum málaferlum. Börn þeirra hjóna áttu einnig, samkvæmt erfðaskrá Epsteins, að erfa tíu milljónir dala frá honum. Mona Juul og Terje Roed-Larsen árið 2004.EPA/MICHAEL BECK NRK segir Monu Juul lengi hafa verið áhrifamikla í Noregi. Á árum áður spilaði hún stóra rullu í gerð Óslóarsáttmálans milli Ísrael og Palestínu og hefur hún einnig verið sendiherra Noregs gagnvart Ísrael, Englandi og Sameinuðu þjóðunum. Terje Rød-Larsen er einnig sagður vera einn af arkitektum Óslóarsáttmálans og hefur sinnt nokkrum stöðum innan Sameinuðu þjóðanna í gegnum árin. Lögreglan í Noregi hefur einnig til rannsóknar samskipti Epsteins við Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.
Noregur Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. 9. febrúar 2026 10:36 Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC. 8. febrúar 2026 21:26 Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34 Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43 Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira
Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. 9. febrúar 2026 10:36
Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC. 8. febrúar 2026 21:26
Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34
Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43