Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt Valur Páll Eiríksson skrifar 9. febrúar 2026 17:01 Eigendurnir Ryan Reynolds og Rob Mac auk Phil Parkinson, þjálfara Wrexham. Wrexham Phil Parkinson verður þjálfari Wrexham eins lengi og hann listir samkvæmt eigendum liðsins, Rob Mac og Ryan Reynolds. Þeir mæra þjálfarann.
Phil Parkinson tók við liði Wrexham árið 2021 og tók til þess skref niður um þrjár deildir, úr B-deild í E-deild enska fótboltans. Hollywood eigendurnir höfðu þá gert tvær tilraunir til að fá þjálfarann áður en Rob Mac tókst að sannfæra Englendinginn í þriðju tilraun. Ráðningin hefur reynst vel. Wrexham hefur stokkið upp um þrjár deildir á jafn mörgum árum og eygja möguleika á að spila á meðan þeirra bestu á Englandi að ári. Liðið situr í neðsta umspilssæti Championship-deildarinnar og er á góðri leið að spila um sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor. Það yrði þá fjórða stökk liðsins upp um deild á jafnmörgum árum. Eigendurnir þakka þjálfaranum árangurinn. Rob McElhenney og Ryan Reynolds hlæja alla leið í bankann þessa dagana.Vísir/Getty „Phil hefur verið burðarásinn í öllu þessu saman,“ segir Mac í samtali við The Athletic. „Að hann skyldi taka þessa áhættu og koma með okkur í þetta ferðalag – nei, öllu heldur að skapa þetta ferðalag og leggja grunninn að því – hefur verið… mikilvægt er ekki orðið… nauðsynlegt er ekki heldur orðið,“ bætir hann við og á því erfitt með að koma mikilvægi þjálfarans í orð. „Ég veit ekki hvort ég eigi orð til að lýsa til fulls hversu mikilvægur Phil hefur verið fyrir sögu og velgengni Wrexham. Hann sagði við mig mjög snemma í samtölum okkar: „Eitt veit ég fyrir víst, þú munt reka mig einn daginn.“ „Ég sagði: „Virkilega?“. Hann sagði að allir knattspyrnustjórar vissu að á einhverjum tímapunkti yrði hann rekinn. Ég sagði: „Allt í lagi, það er sanngjarnt og ég skil að það er hluti af starfinu.“ „En við Ryan tölum oft saman og ég sé bara ekki fyrir mér að Phil Parkinson verði rekinn. Hann hefur verið arkitektinn, skaparinn að þessu. Frá okkar sjónarhóli hefur hann starfið ævilangt. Nema hann finni sér annað starf sem hann vill fara í, þá er hann þjálfarinn okkar. Hann er stjórnandinn okkar. Hann er okkar maður.“ „Ég veit að það hljómar kjánalega og kannski ábyrgðarlaust að segja það opinberlega, en sannleikurinn er sá að þannig líður okkur. Og við höfum alltaf verið hreinskilnir. Alltaf verið eins heiðarlegir og mögulegt er,“ segir Mac.
Enski boltinn Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Sjá meira