Elliði Snær markahæstur í mikilvægum sigri Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 20:33 Elliði Snær Viðarsson var frábær í liði Gummersbach í kvöld Vísir/Vilhelm Elliði Snær Viðarsson átti frábæran leik er lið hans Gummersbach, sem spilar undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, gerði sér lítið fyrir og lagði Flensburg í stórleik kvöldsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.
Strákarnir hans Guðjóns Vals mættu tilbúnir til leiks í kvöld enda um mikilvægan leik þar sem að sigur myndi gera mikið fyrir Gummersbach í baráttunni um Evrópusæti. Liðið sat í sjötta sæti fyrir leikin en Flensburg í öðru sæti. Gummersbach leiddi allan leikinn og óx ásmegin eftir því sem að leið á hann. Mest náði liðið tíu marka forystu seint í seinni hálfleik og sigldi að lokum heim sjö marka sigri, 33-26. Íslenski landsliðsmaðurinn Elliði Snær var virkilega flottur í liði Gummersbach í kvöld og skoraði átta mörk og endaði sem markahæsti leikmaður vallarins. Þá skoraði Teitur Örn Einarsson eitt mark í leiknum fyrir Gummersbach. Um tólfta sigur Gummersbach í deildinni var að ræða á yfirstandandi tímabili, þann þriðja í röð. Lærisveinar Guðjóns Vals verma áfram sjötta sæti deildarinnar en þeir eru að setja pressuna á liðin fyrir ofan sig. Svekkjandi tap Erlangen Þá voru þeir Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson í eldlínunni með Erlangen í kvöld á móti Hannover Burgdorf. Þar dugði flottur leikur Viggós, sem skoraði fimm mörk og lagði upp önnur fimm, ekki til því niðurstaðan var svekkjandi eins marks tap Erlangen, 29-30. Andri Már skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum. Erlangen er því áfram í 12.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 14 stig.
Þýski handboltinn Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira