Enski boltinn

Sjáðu ó­trú­lega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cole Palmer setur boltann yfir úr algjör dauðafæri.
Cole Palmer setur boltann yfir úr algjör dauðafæri. Getty/Nick Potts

Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og það var dramatískur viðsnúningur í þeim öllum. Sigurgöngur Manchester United og Chelsea enduðu og bæði Bournemouth og Newcastle unnu á útivelli.

Klúður kvöldsins var lið Chelsea sem missti ekki bara niður 2-0 forystu á heimavelli á móti Leeds heldur klúðraði Cole Palmer algjöru dauðafæri í uppbótartíma sem hefði tryggt Chelsea 3-2 sigur.

Palmer hafði lagt upp fyrsta markið fyrir Joao Pedro og skorað síðan annað markið úr vítaspyrnu.

Lukas Nmecha minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 67. mínútu og Noah Okafor jafnaði metin sex mínútum síðar eftir klaufagang í Chelsea-vörninni. Palmer gat síðan tryggt liði sínu þrjú stig en hér fyrir neðan má sjá mörkin og þetta ótrúlega klúður hans.

Klippa: Mörkin úr leik Chelsea og Leeds

Manchester United hafði unnið fjóra leiki í röð og sá fimmti hefði þýtt að einn ákveðinn stuðningsmaður félagsins kæmist loksins í klippingu. Ekkert verður af því þar sem að það var United á endanum sem náði að tryggja sér 1-1 jafntefli með marki í uppbótartíma.

Tomas Soucek kom West Ham í 1-0 á 50. mínútu eftir stoðsendingu frá Jarrod Bowen en varamaðurinn Benjamin Sesko tryggði United stig í uppbótartíma með frábærri afgreiðslu eftir fyrirgjöf Bryan Mbeumo.

Klippa: Mörkin úr leik West Ham og Manchester United

Iliman Ndiaye kom Everton í 1-0 á móti Bournemouth með marki úr víti en Rayan og Amine Adli tryggðu gestunum í Bournemouth 2-1 endurkomusigur í Bítlaborginni.

Jacob Ramsey tryggði Newcastle 2-1 útisigur á Tottenham með marki á 68. mínútu eftir að Archie Gray hafði jafnað metin í 1-1 fjórum mínútum fyrr. Malick Thiaw kom Newcastle í 1-0 með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiksins.

Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr leikjunum í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×