Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2026 17:00 Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir síðasta ár hafa verið stórt og þýðingarmikið fyrir bankann. Vísir/Anton Brink Stjórn Íslandsbanka mun leggja til á aðalfundi að greiddir verði út tólf milljarðar í arð. Hagnaður af rekstri bankans nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og 25,2 milljörðum króna fyrir árið í heild. Bankastjóri segir bankann hafa náð öllum sínum fjárhagslegu markmiðum.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir að síðasta árs verði minnst fyrir margra hluta sakir. „Stór og þýðingarmikill viðburður í sögu Íslandsbanka var sala ríkissjóðs á eftirstandandi eignarhlut sínum í bankanum. Útboðið gekk vonum framar og var stækkað vegna mikillar eftirspurnar og fór fjöldi hluthafa í bankanum hæst í um 35 þúsund hluthafa strax í kjölfar útboðsins,“ segir Jón Guðni í afkomutilkynningu bankans fyrir fjórða ársfjórðung og síðasta ár. Hann segir að þessar miklu breytingar á hluthafahópi hafi kallað á aukna aðkomu fjárfesta að stjórn bankans og í upphafi nýs árs hafi farið fram hluthafafundur þar sem ný stjórn var kjörin og Heiðar Guðjónsson kjörinn stjórnarformaður. Hann segir afkomu bankans á fjórða ársfjórðungi hafa verið góða. Hagnaður á tímabilinu hafi verið 5,9 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár 10,5 prósent. Afkoma ársins í heild var því 25,2 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár 11,2 prósent. „Bankinn náði þar með öllum fjárhagslegum markmiðum sínum á liðnu rekstrarári,“ segir Jón Guðni. Framþróun og gervigreind Hann segir að frekari skref hafi verið stigin fyrir lok árs í átt að hagkvæmustu samsetningu eigin fjár með vel heppnaðri útgáfu skuldabréfa og fjallar um það í tilkynningu sinni að fjölmörg tækifæri liggi í aukinni hagnýtingu gervigreindar, tækniframþróun og skerptum áherslum á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar. „Framþróun í appi Íslandsbanka hefur verið afar vel tekið meðal viðskiptavina á árinu sem og nýjungum líkt og „Bílar með reynslu“ hjá Ergo sem opnaði á nýja möguleika við fjármögnun á eldri bílum. Bankinn hefur lýst sig reiðubúinn til þátttöku í uppbyggingu þarfra innviða hér á landi og þátttaka Íslandsbanka í fjármögnun á nýrri Ölfusárbrú er skýrt merki um að yfirlýsingum bankans í þeim efnum fylgi aðgerðir,“ segir Jón Guðni. Nánar er fjallað um afkomu bankans í afkomutilkynningu hér. Þar kemur til dæmis fram að útlán til viðskiptavina jukust um 33,9 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2025 frá þriðja ársfjórðungi 2025 og voru 1.367 milljarðar króna í lok fjórða ársfjórðungs 2025. Innlán frá viðskiptavinum drógust saman um fjögur prósent milli loka þriðja og fjórða ársfjórðungs 2025 og námu 969 milljörðum króna í lok fjórða ársfjórðungs. Í tilkynningu kemur einnig fram að stjórn Íslandsbanka muni leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Í tilkynningunni segir að það sé í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans um að greiða um 50 prósent af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa. Þá segir að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi veitt bankanum heimild fyrir endurkaupum á eigin hlutum fyrir allt að 15 milljarða króna að markaðsvirði. Bankinn muni tilkynna um tímasetningu og framkvæmd endurkaupa samkvæmt framangreindri heimild þegar ákvörðun um þau hefur verið tekin. Fjármálaeftirlitið hefur einnig veitt bankanum heimild til lækkunar hlutafjár sem nemur fjárhæð þeirra eigin hluta sem keyptir hafa verið á grundvelli eldri heimilda fjármálaeftirlitsins. Stjórn bankans mun því, samkvæmt tilkynningu, óska eftir endurnýjaðri heimild til endurkaupa á eigin bréfum að því marki sem lög leyfa á aðalfundi bankans í mars 2026.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Fjármál heimilisins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Sjá meira