FH sneri leiknum og sigraði Selfoss Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. febrúar 2026 20:41 Daníel Freyr Andrésson varði vel fyrir FH á mikilvægum tímapunkti í leiknum. Vísir/Anton Brink FH sneri leiknum á lokamínútunum og vann 33-30 sigur gegn Selfossi í 18. umferð Olís deildar karla í handbolta.
Liðin skiptust á að taka forystuna fyrst um sinn en undir lok fyrri hálfleiks steig Selfoss skrefinu fram úr. FH var þó aldrei langt undan og jafnaði leikinn nokkrum sinnum, en var að jafnaði marki eða tveimur frá Selfyssingum. Leikurinn snerist síðan FH í vil þegar Garðar Ingi Sindrason fiskaði víti og rautt spjald á Valdimar Örn Ingvarsson. Valdimar var rekinn af velli með sína þriðju brottvísun og tveggja marka forysta Selfyssinga hvarf snögglega. Garðar Ingi er frændi Arons Pálmarssonar, sem var á hliðarlínunni í kvöld í fyrsta sinn sem aðstoðarþjálfari FH. Daníel Freyr Andrésson átti mikilvægar vörslur á þeim tímapunkti og gaf síðan stoðsendingu í markinu sem kom FH yfir í fyrsta sinn síðan í fyrri hálfleik. Á lokamínútunum héldu heimamenn gestunum frá sér og tókst að stækka forystuna. Lokatölur 33-30. Símon Michael Guðjónsson var markahæstur hjá FH með 9 mörk en Garðar Ingi Sindrason var stoðsendingahæstur með 5 stoðsendingar, auk þess að skora 6 mörk. Hannes Höskuldsson var markahæstur hjá Selfossi með 9 mörk en Tryggvi Sigurberg Traustason gaf 7 stoðsendingar. FH komst með þessum sigri upp í annað sæti deildarinnar og er nú með eins stigs forskot á Hauka. Selfoss situr hins vegar í 8. sætinu.
Olís-deild karla UMF Selfoss FH Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira