Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Rakel Sveinsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 10:00 Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, elskaði Miami Vice þættina sem unglingur. Fannst þeir svo töff og var sannfærður um að einn daginn myndi hann eiga fullan fataskáp af hvítum jakkaföt og Ferrari úti á bílaplani. Vísir/Vilhelm Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Á virkum dögum vakna ég yfirleitt um hálf sjö. Nema þegar stressið bankar upp á, þá vakna ég löngu á undan vekjaraklukkunni. Ég bý með B-týpum, þannig að ég er sá eini sem stillir klukku. Ég er í raun heimilisvekjaraklukkan. Um helgar tek ég stundum metnaðarfulla stefnu á að sofa út en man samt ekki hvenær það tókst síðast.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég fer fram, undirbý hundamatinn og næ mér í kaffi. Svo vek ég konuna með kaffibolla og hundinn með morgunmatnum, bæði þurfa álíka mikla hvatningu til að fara á fætur. Næst eru það krakkarnir og síðan morgunganga með hundinn. Dagurinn byrjar sem sagt í skipulagðri keðjuvakningu.“ Hvaða sjónvarpssería var í uppáhaldi þegar þú varst unglingur? Miami Vice, klárlega. Þeir voru svo ótrúlega töff, stíllinn, tónlistin og bílarnir. Ég var sannfærður um að ég myndi einhvern daginn eiga fataskáp fullan af hvítum jakkafötum og Ferrari á planinu. Ég áttaði mig aðeins seinna á því að það var örlítið meiri munur á Miami og Reykjavík en ég hafði gert ráð fyrir því ég vinn í hugbúnaðargeiranum sem er aðeins minna svalt. En fyrirtækið heitir allavega Wise, það er eitthvað.“ Jóhannes skráir allt í dagatalið. Það sem ekki er skráð þar, einfaldlega gerist ekki. Á morgnana fer hann yfir verkefni dagsins og forgangsraðar tímanum.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Heima er ég mest að útskýra hvað við gerum seinna frekar en núna en í Wise erum við að leggja mikla áherslu á gervigreind, skilvirkni og sjálfvirkni. Það snýst bæði um að hjálpa viðskiptavinum að nýta tæknina betur og að bæta eigin rekstur. Okkar viðskiptavinir eru fyrst og fremst fyrirtæki og sveitarfélög þannig að ég er mikið að hitta stjórnendur þeirra. Samhliða því erum við stöðugt að færa lausnir og þjónustu ofar í skýið, þannig fá viðskiptavinir okkar hraðari innleiðingar, betra öryggi og lausnir sem skalast eftir þörfum þeirra.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Án góðs skipulags missi ég einfaldlega of marga bolta. Tæknin bjargar mér, allt fer í dagatal og verkefnastýringu; þar stóla ég á IT-nördinn í sjálfum mér. Heima gildir einföld regla: „Ef það er ekki í calendarinu, þá er það ekki að fara að gerast.“ Það fyrsta sem ég geri á morgnana - eftir kaffi og hund - er að fara yfir daginn og forgangsraða tímanum.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég reyni að vera kominn upp í rúm um ellefu. Já, þetta er mjög miðaldra, en góður nætursvefn er einfaldlega besta framleiðnitólið og eitthvað sem gervigreindin leysir ekki af hólmi. Ég á þó það til að vera enn að horfa á símann um miðnætti og sannfæra sjálfan mig um að „þetta sé bara rétt í smástund.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00 „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16 Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, móðgaðist mjög þegar Viðskiptablaðið sagði hana hundleiðinlega og húmorslausa. Enda er hún að grínast allan daginn! Höllu finnst alræði A-fólksins í þjóðfélaginu nokkuð ýkt. 24. janúar 2026 10:01 Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Hreggviður Steinar Magnússon, Reggie, framkvæmdastjóri Ceedr, segir stundum þurfa að minna eiginkonuna á háttatímann. Því nú sé hún komin með prjónaveikina frá ömmu sinni. Hreggviður segir rómantík snúast um að segja ég elska þig á marga ólíka vegu. 17. janúar 2026 10:00 Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Ólöf Kristjánsdóttir, CMO hjá Taktikal og formaður WomenTechIceland, sveiflast á milli þess að fasta á morgnana eða borða morgunmat. Enda hvoru tveggja sagt svo hollt. Hárið er orðið óstýrilátara en áður og þrátt fyrir rándýran búnað tekst henni illa að venja sig á kaffi. 10. janúar 2026 10:03 Mest lesið Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Atvinnulíf Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent Glæpamenn í fjarvinnu Atvinnulíf Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Samstarf Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Samstarf Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Viðskipti erlent Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Viðskipti erlent Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Sjá meira
Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00
„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16
Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, móðgaðist mjög þegar Viðskiptablaðið sagði hana hundleiðinlega og húmorslausa. Enda er hún að grínast allan daginn! Höllu finnst alræði A-fólksins í þjóðfélaginu nokkuð ýkt. 24. janúar 2026 10:01
Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Hreggviður Steinar Magnússon, Reggie, framkvæmdastjóri Ceedr, segir stundum þurfa að minna eiginkonuna á háttatímann. Því nú sé hún komin með prjónaveikina frá ömmu sinni. Hreggviður segir rómantík snúast um að segja ég elska þig á marga ólíka vegu. 17. janúar 2026 10:00
Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Ólöf Kristjánsdóttir, CMO hjá Taktikal og formaður WomenTechIceland, sveiflast á milli þess að fasta á morgnana eða borða morgunmat. Enda hvoru tveggja sagt svo hollt. Hárið er orðið óstýrilátara en áður og þrátt fyrir rándýran búnað tekst henni illa að venja sig á kaffi. 10. janúar 2026 10:03