Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. febrúar 2026 11:07 Ine Marie Eriksen Søreide tekur við formannsembætti norska íhaldsflokksins í dag í skugga Epstein-mála sem hafa skekið norsk stjórnmál undanfarnar vikur. EPA/Robert Ghement Eftir 22 ár með Ernu Solberg í broddi fylkingar tekur Ine Eriksen Søreide við formannsembætti í norska íhaldsflokknum Høyre. Ine er ein í framboði en næstu vikur munu reyna á nýja formanninn enda er enn mörgum spurningum um umfang sambands norskra stjórnmálamanna við Jeffrey Epstein ósvarað.
Birting fleiri gagna úr máli auðkýfingsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein hefur skekið norsk stjórnmál undanfarið. Það gustar hressilega um norsku konungsfjölskylduna vegna birtingar tölvupóstsamskipta Mette-Marit krónprinsessu. Á sama tíma standa yfir málaferli yfir syni hennar, Marius Høiby, sem er sakaður um fjölda kynferðis- og ofbeldisbrota. Epstein-skjálfti skekur Noreg Efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar gerði húsleit í íbúð Thorbjørns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, á dögunum. Í kjölfarið var ákæra gefin út á hendur honum fyrir stórfellda spillingu á embættistíð sinni. Liður í því máli byggir á samskipstum hans við Jeffrey Epstein eftir að hann hafði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot. Epstein virðist samkvæmt gögnunum hafa greitt fyrir margvíslegan ferðakostnað Jagland og fjölskyldu hans. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd norska Stórþingsins hóf á dögunum frumkvæðisathugun á tengingum Epstein í norskum stjórnmálum. Fyrr í vikunni beindi nefndin 29 spurningum til ríkisstjórnar Noregs en margar þeirra snúa að árunum 2019-2020 þegar Søreide var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Ernu Solberg. Eftir að eftirlitsnefnd berast svör við þessum 29 spurningum fer rannsókn í gang þar sem Søreide verður væntanlega gert að fara á fund nefndarinnar og svara fyrir það hvort hún hafi brugðist nægilega við miðað við þær upplýsingar sem hafi legið fyrir á hennar tíma í ráðherrastól. „Allt upp á borðið“ Á dögunum kom það í ljós að utanríkisráðuneytinu með Søreide í ráðherrastól hefði borist tilkynning um möguleg tengsl International Peace Institute, hugveitu í eigu Terje Rød-Larsen fyrrverandi ráðherra, og Jeffrey Epstein. Sá fyrrnefndi er sakaður um að hafa notað hugveituna til að koma Epstein í samband við ungar stelpur. Á blaðamannafundi sem Søreide hélt sjálf í gær gekkst hún við því að hún hefði getað sett í gang umfangsmeiri rannsókn á ábendingunni sem barst. Hún sagði að hún hafi ekkert að fela.
Noregur Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Sjá meira