Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2026 07:06 Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægðir vestur af Noregi halda áfram að draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga. Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag þar sem kaldast verður inn til landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að heldur meiri hreyfing verði þó á lægðum í kringum landið þessa vikuna sem færi yfir úrkomubakka víða um land og því ætti hlé að verða á þurrkatíðinni um landið sunnanvert. Á þriðjudag verður allhvasst eða hvasst austantil á landinu, einkum á Austfjörðum, og einnig um vestanvert landið síðdegis. Víða úrkomulítið fyrir utan stöku él norðantil, en útlit fyrir að hríð bresti á um landið suðvestanvert þegar líða fer á þriðjudaginn sem gæti varað inn í miðvikudaginn. Þá mun draga hægt úr vindi og ofankomu sunnantil, en byrja að snjóa norðantil síðdegis. Á fimmtudag er útlit fyrir að það verði framhald á snjókomunni norðanlands þó dragi heldur úr frosti. Annars þurrt að mestu. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustlæg átt 8-15 m/s norðvestan- og vestantil, hvassara austast um tíma, en annars hægari. Dálítil él norðantil, en snjókoma sunnantil. Hiti frá frostmarki við Suðurströndina, niður í 12 stiga frost fyrir norðan. Á miðvikudag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Él um landið sunnanvert, en snjókoma norðanlands. Frost 0 til 8 stig. Á fimmtudag: Norðaustan 3-13 m/s, hvassast norðvestantil. Snjókoma eða él um landið norðanvert. Frost 0 til 6 stig. Á föstudag: Norðaustan 5-15 m/s, hvassast norðvestantil og með Suðurströndinni. Snjókoma eða él norðanlands. Hiti um frostmark við ströndina en vægt frost inn til landsins. Á laugardag: Útlit fyrir austlæga átt og rigningu, snjókomu eða slyddu, einkum norðantil. Hlýnar upp fyrir frostmark við ströndina í flestum landshlutum. Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðna norðaustlæga átt og talsverða úrkomu, einkum suðaustantil, en hægari og úrkomuminna suðvestantil. Heldur hlýrra syðst, annars hiti víða um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira