Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Lovísa Arnardóttir skrifar 18. febrúar 2026 07:27 Áfram verður nokkur þurrt og kalt á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Loftgæði hafa veri slæm síðustu daga en það hefur blásið nokkuð í loft og loftið gæti hafa hreinsast í nótt. Vísir/Vilhelm Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. „
Hann dró ekki alla leið, fór yfir Hellisheiðina en náði ekki inn á byggð til okkar. Kalda loftið fyrir norðan okkar er ansi þungt að ýta frá,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, og að það sé höfuðástæðan fyrir því að snjókoman hafi ekki náð alla leið á höfuðborgarsvæðið. Hann segir að litlu hafi þó munað. „Það munaði um fjórum til fimm kílómetrum að þetta næði til okkar. Á stóru korti væri þetta ekki þykktin á pennastriki.“ Mögulega hafi vindur hreinsað loft Óli Þór segir nokkuð hafa blásið þannig mögulega hafi það hreinsað loftið þó að það hafi ekki snjóað. Vonir stóðu til að með úrkomu myndu loftgæði verða betri á höfuðborgarsvæðinu en þau hafa verið afar slæm síðustu daga. Óli Þór segir veðrið eiga að vera svipað næstu daga en það gæti dregið til tíðina eftir helgi. „Það er enga úrkomu að sjá fyrr en eftir helgi. Það gætu komið einhver korn fram að hádegi en þau verða bara örfá og það er ekkert sem mun festa. En svo fer þessi úrkomubakki aftur suður á land og við tekur svipað veður, alla vega út vikuna.“ Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi Á Suður- og Suðausturlandi er gul viðvörun. Þar er snjókoma og strekkingsvindur og er viðvörunin í gildi til klukkan þrjú í dag. Hann segir að þó að þar snjói virðist hann ekki festast mikið á vegum. Viðloðunarhæfni snjókomunnar minnki í svo miklum kulda. „Þetta fýkur en getur stoppað í sköflum.“ Hann segir að fyrir norðan gæti svo farið að snjóa í kvöld. „Það er föl fyrir norðan og suður með Austurlandi og svo kemur þokkalegur bakki þar inn seinna í kvöld. Það verða viðvarandi él þar í dag en það er myndarlegur úrkomubakki sem fer yfir Norðurland í kvöld og fram eftir nóttu og svo verður éljagangur þar áfram. Það er ekkert að fara að taka neitt upp sem kemur þar,“ segir Óli Þór Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag og föstudag:Norðlæg átt, 5-13 m/s. Snjókoma eða él um landið norðanvert en skýjað með köflum sunnantil. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.Á laugardag:Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, en norðan 8-13 við austurströndina. Smáél fyrir norðan og austan en léttskýjað og suðvestanvert landið. Frost 0 til 15 stig en sums staðar frostlaust allra syðst yfir daginn.Á sunnudag:Norðaustan 5-13, en 10-18 syðst. Víða dálítil él, en yfirleitt þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.Á mánudag:Norðaustlæg eða breytileg átt, él á víð og dreif, en lengst af þurrt á Norðurlandi. Vægt frost inn til landsins, en allvíða frostlaust við ströndina.Á þriðjudag:Útlit fyrir áframhaldandi austlæga átt. Él á stöku stað og hiti breytist lítið.
Veður Færð á vegum Loftgæði Umhverfismál Loftslagsmál Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Innlent Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Innlent Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Deilt um kjör Wolt-sendla Viðskipti innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Fleiri fréttir Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Kaldri norðlægri átt beint til landsins Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Vindasamt víða á landinu Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Sjá meira