Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Eiður Þór Árnason skrifar 23. febrúar 2026 17:21 Peter Mandelson harmaði í tölvupósti til Jeffreys Epstein árið 2008 að Epstein hefði verið dæmdur fyrir að falast eftir kynlífi hjá ólögráða stúlku. AP/Carl Court Peter Mandelson, fyrrverandi þingmaður og sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Breska lögreglan hóf rannsókn á hinum 72 ára Mandelson þann 3. febrúar eftir að ríkisstjórn Keirs Starmer afhenti gögn um samskipti sendiherrans fyrrverandi við Epstein. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Þetta gerðist í kjölfar þess að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti tölvupósta sem bentu til þess að Mandelson hefði áframsent upplýsingar til Epsteins þegar hann var viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Gordons Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum frá stjórnvöldum til Epsteins sem gætu haft áhrif á viðskiptamarkaði. Lögreglan í Lundúnum hefur ekki veitt frekari upplýsingar um það hvers vegna Mandelson er handtekinn. Mandelson sagði af sér þingmennsku í lávarðadeild breska þingsins 3. febrúar, sama dag og lögregla hóf rannsókn sína. Framkvæmdu húsleit Peter Mandelson sást leiddur burt frá heimili sínu í Camden í norðurhluta Lundúna síðdegis í dag af óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Var hann svo settur í aftursæti ómerktrar bifreiðar. „Lögreglumenn hafa handtekið 72 ára gamlan mann, grunaðan um misferli í opinberu starfi,“ sagði í yfirlýsingu frá lögreglunni í Lundúnum. „Hann var handtekinn í Camden mánudaginn 23. febrúar og hefur verið færður á lögreglustöð í London til yfirheyrslu.“ „Þetta kemur í kjölfar þess að heimildir til húsleitar voru veittar fyrir tvenn heimilisföng á Wiltshire- og Camden-svæðunum.“ Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, var handtekinn í síðustu viku, sömuleiðis grunaður um misferli í opinberu starfi vegna ásakana um að hafa sent Epstein trúnaðarupplýsingar frá stjórnvöldum. Stórt nafn innan Verkamannaflokksins Peter Mandelson hóf störf fyrir Verkamannaflokkinn á níunda áratugnum og hafði verið áberandi innan flokksins í áratugi. Hann gegndi lykilhlutverki í yfirburðasigri Tony Blair í kosningunum árið 1997, að sögn BBC. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, skipaði hann sendiherra í Washington í desember 2024. Á þeim tíma lá fyrir að hann hefði verið vinur dæmda kynferðisafbrotamannsins Jeffreys Epstein. Mandelson var vikið úr embætti sendiherra í september síðast liðnum eftir að forsætisráðuneytið sagði að nýjar upplýsingar hefðu komið fram sem sýndu hversu náið samband þeirra var. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira