Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2026 07:12 Í kvöld verður orðið frost á öllu landinu. Veðurstofan Eftir sunnanáttina í gær þá snýst í norðan- og norðvestanátt í dag og verður vindur víða á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu en 13 til 20 með snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við éljum norðan- og vestanlands. Úrkomusvæði með samfelldri rigningu eða slyddu fer yfir austanvert landið, en styttir upp þar í kvöld. Það kólnar nokkuð skarpt í dag, það frystir fyrst á Vestfjörðum og í kvöld verður orðið frost á öllu landinu. Fram kemur að það sem af er ári hafi veður á landinu verið óvenjulega tilbreytingarlítið og hafi austan- og norðaustanáttir verið ríkjandi. Nú hafi hins vegar orðið umskipti í veðrinu og á næstunni taki við veðurlag sem einkennist af breytileika. Bæði verði veðrið breytilegt milli landshluta og einnig breytilegt með tíma innan sama landsvæðis. Að þessu sögðu, þá skal nú gerð tilraun til að setja fram veðurspá fyrir landið allt í dag. Eftir sunnanáttina í gær, þá snýst í norðan- og norðvestanátt í dag, víða á bilinu 8-15 m/s, en 13-20 með snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld. Búast má við éljum norðan- og vestanlands. Úrkomusvæði með samfelldri rigningu eða slyddu fer yfir austanvert landið, en styttir upp þar í kvöld. Það kólnar nokkuð skarpt í dag, það frystir fyrst á Vestfjörðum og í kvöld verður orðið frost á öllu landinu. Á morgun, miðvikudag, er útlit fyrir suðvestan- og sunnanátt. Það má búast við éljum, en þegar kemur fram á daginn er gert ráð fyrir að úrkomusvæði með snjókomu fari yfir vesturhelming landsins frá suðri til norðurs. Austanvert landið ætti að sleppa við úrkomu á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan og sunnan 8-15 m/s og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Frost 0 til 10 stig, mildast suðvestanlands. Á fimmtudag: Suðaustan 5-13 og rigning eða slydda með köflum sunnanlands, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Gengur í norðan 10-18 með snjókomu og frosti á vestanverðu landinu. Á föstudag: Ákveðin vestlæg átt með éljum eða snjókomu, en styttir upp á austanverðu landinu síðdegis. Frost 3 til 12 stig Á laugardag: Breytileg átt. Dálítil él vestantil, en snjókoma eða slydda á austurhelmingi landsins. Frost 0 til 10 stig, mildast við austurströndina. Á sunnudag og mánudag: Suðvestlæg átt með éljum eða snjókomu, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Frost um allt land.
Veður Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Fleiri fréttir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Sjá meira