Björn skellti sér strax í sokkana Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. febrúar 2026 16:28 Björn Skúlason var ekki lengi að fara úr skóm og sokkum og skella sér í Mottumarssokkanna. Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og eiginmanni hennar Birni Skúlasyni voru í annað sinn afhent fyrstu sokkapörin sem seld eru til styrktar Krabbameinsfélaginu í Mottumars.
Móttökurnar á Bessastöðum voru góðar þegar Stefán Svan Aðalsteinsson, hönnuður Mottumarssokkanna í ár, afhenti forsetahjónunum fyrstu pörin. Forsetinn þakkaði félaginu fyrir að opna á umræðuna og undirstrikaði mikilvægi þess að enginn upplifi einmanaleika og einangrun í erfiðum veikindum. Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af Stefáni Svan í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Stefán var valinn úr hópi tæplega hundrað umsækjenda sem sóttu um að fá að hanna sokkanna. Hönnunin byggir á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttast saman í áberandi mynstri og leturgerð. Í þeim felst þakklæti til samfélagsins alls, en þó sérstaklega til þeirra sem takast á við krabbamein og aðstandenda sem standa þétt við bakið á þeim. Stefán Svan hannar sokkana í ár. Stefán, Anton og Linda þekkja öll glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því að hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því ekki aðeins falleg heldur persónuleg, einlæg og sprottin úr djúpri samstöðu, sem er einmitt áhersla Mottumars í ár. Allur ágóði af sölu Mottumarssokkanna rennur til starfsemi Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur. Öll starfsemi félagsins byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja og Mottumars er ein af lykilstoðum hennar. Sokkarnir í ár eru litríkir og koma í nokkrum öðrum litum en þessum bláu og fjólubláu sem sjást hér.
Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Krabbamein Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira