Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Evrópuferðir 25. febrúar 2026 11:23 Evrópuferðir bjóða upp glæsilega golfpakka á Spáni, í Portúgal og á Gran Canaria þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið. Fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem elska golfíþróttina er fátt skemmtilegra en að skipta vetrarkuldanum út fyrir sól, þægilega hafgolu og fagurgræna golfvelli í Suður Evrópu. Á meðan dimmir dagar og frost ráða ríkjum heima býðst kylfingum að leika á glæsilegum völlum á Spáni, í Portúgal eða á Gran Canaria þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið.
Ferðaskrifstofan Evrópuferðir sérhæfir sig m.a. í golfferðum í sólina og segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar, að eftirspurnin hafi aldrei verið meiri. „Vinsældir golf íþróttarinnar aukast með hverju árinu og sífellt fleiri nota tækifærið til að spila golf í sólinni, annað hvort yfir veturinn eða á haustin og framlengja þannig golftímabilið. Við bjóðum upp á fjölmarga spennandi golf pakka þar sem sameinast stórglæsilegir golfvellir og gisting við allra hæfi.“ Þráinn Vigfússon er framkvæmdastjóri Evrópuferða. Allir pakkarnir sem Evrópuferðir bjóða upp á eru með verð og gæði að leiðarljósi og eru með fjölbreytta golfpakka sem henta öllum getustigum kylfinga. „Við höfum verið dugleg að setja upp nýja pakka og taka aðra út sem ekki hafa staðist væntingar viðskiptavina okkar. Þannig að við eru stolt af því vöruframboði sem við erum með á heimasíðunni,“ segir Þráinn. Gran Canaria Gran Canaria, eða Kanaríeyjar eins og Íslendingar kalla oftast eyjuna fögru, nýtur sívaxandi vinsælda sem golfparadís, ekki síst yfir vetrartímann þegar hitastigið fer sjaldan undir 20 stigin. „Við bjóðum upp á ferðir þangað í febrúar, mars og apríl en þær ferðir seldust allar upp fljótlega. Núna er komið í sölu tímabilið október fram í apríl 2027 og hvet ég áhugasama til að skoða þessa vinsælu pakka.“ Lopesan C. Meloneras er glæsilegt hótel staðsett á Gran Canaria. Boðið er upp á fimm glæsileg hótel, eitt fjögurra og fjögur fimm stjörnu. „Þetta eru hótelin Lopesan C. Meloneras Golf, Kumara by Lopesan, Lopesan Villa del Conde, Hotel Faro Lopesan Collection og Lopesan Baobab Golf. Flest hótelin eru staðsett við ströndina og í göngufæri við marga góða veitingastaði. Meloneras golfvöllurinn á Gran Canaria er frábær golfvöllur. Boðið er upp á pakka í 7 til 21 nætur og eru golfvellirnir Meloneras Golf og Maspalomas Golf stutt frá hótelunum í um fimm mínútna akstursfjarlægð. Auk þess er þriðji völlurinn, Anfi Tauro Golf, í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá hótelunum. Boðið er upp á endurgjaldslausar ferðir til og frá golfvöllunum frá hótelunum.“ Öll hótelin fimm bjóða upp á úrval veitingastaða og ýmiskonar afþreying er í boði, t.d. líkamsrækt, sundlaugar, heilsulindir, tennis- og padelvellir og kvölddagskrá. Fairmont hótelið á Costa del Sol á Spáni er frábært fjögurra stjörnu hótel. Skammt frá hótelinu eru tveir frábærir 18 holu golfvellir. Costa del Sol og Alicante Spánn er líka vinsæll áfangastaður fyrir sólþyrsta golfáhugamenn og bjóða Evrópuferðir upp pakka til Costa del Sol og Alicante. „Icelandair hóf beint flug til Costa del Sol í september á síðasta ári og er að fljúga þangað allt árið. Við bjóðum upp á frábær fjögurra og stjörnu hótel, þar á meðal fyrsta Fairmont hótelið á Spáni sem opnaði árið 2025 en í þeim pakka er spilað á tveimur frábærum 18 holu golfvöllum. Hin hótelin eru Villa Padierna Palace, La Cala Golf Resort og SO/ Sotogrande Resort. Í pökkunum er boðið upp einn til þrjá golfvelli sem eru í nágrenni hótelanna og bjóðum við upp á ferðir þangað allt árið.“ Einnig er boðið upp á glæsilegt fimm stjörnu hótel í Alicante sem heitir La Finca Resort. „Þetta er sannkallað lúxushótel sem er staðsett skammt frá Alicante borg. Hótelið er þekkt fyrir rólega stemningu, nútímalega hönnun og frábæran golfvöll sem er við hliðina á hótelinu.“ La Finca er glæsilegt fimm stjörnu hótel í Alicante. Algarve og Lissabon Þótt stóri bróðir í austri fái oft meiri athygli sem áfangastaður fyrir sólþyrsta golfara er Portúgal líka skemmtileg golf paradís. Evrópuferðir bjóða upp á golfferðir til Algarve og Lissabon. „Í Algarve bjóðum við upp á pakka í apríl og maí og svo aftur í september og október. Þar er hægt að velja á milli þriggja glæsilegra fjögurra og fimm stjörnu hótela, Pestana Vila Sol Golf, Hyatt Regency Vilamoura og Amendoeira Golf Resort. Flogið er með Icelandair og er hægt að velja um 7 til 14 daga ferðir.“ Palacio Estoril hótelið í Lissabon er staðsett við hliðina á Estoril golfvellinum. Lissabon er höfuðborg Portúgals og stærsta borg landsins. Í nágrenni hennar má finna fjölda glæsilegra golfvalla. Evrópuferðir bjóða upp á spennandi golfpakka til Lissabon allt árið. „Við bjóðum upp á þrjú fimm stjörnu hótel í Lissabon þar sem golfarar fá að spila fimm hringi á sjö dögum.“ Um er að ræða hótelin Marriott Praia D'EI Rey sem stendur við hinn fræga Praia D’El Rey golfvöll, Palacio Estoril Hotel sem er staðsett við hliðina á Estoril Golf og Onyria Quinta da Marinha Cascais en við hlið hótelsins er Quinta da Marinha völlurinn sem er með stórbrotið útsýni yfir Atlantshafið og Sintra fjöllin. „Lissabon er að koma mjög sterkt inn hjá okkur, enda erum við með frábæra pakka á góðum verðum. Palacio Estoril er staðsett í bænum Estoril sem er stutt frá Lissabon og staðsett í stuttu göngufæri frá strönd og veitingastöðum. Það er einnig stuttur göngutúr frá hótelinu að lestarstöð þar sem hægt er að taka lest sem stoppar í miðbæ Lissabon sem tekur um 30 mínútur. Þannig hefur fólk verið að sameina borgar-, strandar- og golfferð í einum pakka,“ segir Þráinn. Las Madrigueras er staðsett á Amerísku ströndinni og samtengt Las Americas golfvellinum sem er einn vinsælasti golfvöllur eyjunnar. Tenerife Það þekkja auðvitað allir Íslendingar Tenerife, en Evrópuferðir bjóða upp á fjóra frábæra kosti á eyjunni. Vinsælasti pakkinn á Tenerife hefur verið Las Madrigueras sem er staðsett á Amerísku ströndinni og samtengt Las Americas golfvellinum sem er einn vinsælasti golfvöllur eyjunnar. Boðið er upp á tvo valkosti með fimm stjörnu hótelum sem eru við golfvelli, þ.e. Las Madrigueras og Buenavista og tvo frábæra kosti með lúxusíbúðum á Las Terrazas de Abama Golf og Hotel Suites Villa Maria á Golf Adeje. Nánari upplýsingar má finna á vef Evrópuferða.
Golf Golfvellir Ferðalög Ferðaþjónusta Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Sjá meira