Körfubolti

Magnaðar myndir frá endur­komu aldarinnar

Sindri Sverrisson skrifar
Viðbrögð Hilmars Smára Henningssonar voru lýsandi. Það trúðu fæstir sínum eigin augum.
Viðbrögð Hilmars Smára Henningssonar voru lýsandi. Það trúðu fæstir sínum eigin augum. vísir/Hulda Margrét

„Endurkoma aldarinnar.“ Þannig lýsa erlendir miðlar því sem gerðist í Laugardalshöll í gærkvöld. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á svæðinu fyrir Vísi og tók frábærar myndir af úrslitastundinni.

Ísland var 21 stigi undir gegn Litháen þegar aðeins sex og hálf mínúta var til stefnu en náði með ótrúlegum hætti að vinna eins stigs sigur, 86-85, þar sem sigurkarfa Elvars Más Friðrikssonar kom á lokasekúndunni.

Áður hafði Elvar sett niður tvo þrista á lokamínútunni og drifið íslenska liðið áfram í endurkomu gegn einni mestu körfuboltaþjóð heims.

Sigurinn í gær þýðir að Ísland hefur þegar unnið bæði Ítalíu og Litháen, en vissulega einnig tapað fyrir Bretlandi, í fyrstu þremur leikjunum í undankeppni HM. 

Fari svo að liðið spili á heimsmeistaramótinu á næsta ári, og jafnvel þó svo að það takist ekki, er ljóst að endurkoma aldarinnar verður oft rifjuð upp og myndirnar hérna að neðan munu lifa lengi.

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

vísir/Hulda Margrét

Næsti leikur Íslands er á mánudagskvöld þegar liðið mætir Litháen á útivelli.


Tengdar fréttir

Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars

Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti.

„Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“

Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands.

Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann í kvöld sinn fyrsta sigur á Litháen síðan í janúar 1992. Íslenska liðið lenti mest 21 stigi undir í leiknum en tryggði sér 86-85 sigur með því að vinna lokaleikhlutann 32-17.

Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“

Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×