Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Ísland tók á móti Tyrklandi í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfuknattleik. Ljóst var fyrir leik kvöldsins að andstæðingurinn væri ógnar sterkur en Tyrkir sitja í 11. sæti heimslista FIBA og voru á toppi riðilsins. Það er þó aðeins rúm ár síðan að íslensku strákarnir sigurðu lið og tryggði sig inn á EuroBasket í leiðinni. Því miður fyrir strákana okkar þá náði liðið sér aldrei á strik í dag en Tyrkir unnu sannfærandi sigur 37 stiga sigur, 73-110. Körfubolti 31.8.2026 18:47
Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Ísland tapaði 102-73 á útivelli gegn Serbíu í fyrsta leik milliriðilsins í undankeppni HM. Strákarnir okkar byrjuðu af fítonskrafti en fljótt fjaraði undan, þrátt fyrir að Nikola Jokic hafi ekki náð sér á strik. Körfubolti 28.8.2026 17:15
„Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Íslenska karlalandsliðið í körfubolta á tvo leiki í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Katar árið 2027. Elvar Már Friðriksson er einn lykilmaður íslenska landsliðsins og er spenntur fyrir komandi leikjum. Körfubolti 28.8.2026 12:47
„Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti 28.8.2026 10:32
Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Körfubolti 5.7.2026 13:15
Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Elvar Már Friðriksson átti mjög góða kafla í leik Íslands og Ítalíu fyrr í kvöld. Hans framlag dugði þó ekki til enda mjög erfitt að eiga við Ítalíu í þeim ham sem þeir voru í í kvöld. Elvar skoraði 13 stig en leiknum lauk 83-102 fyirr gestina. Körfubolti 2. júlí 2026 22:13
Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Ísland mætti Ítalíu í næst síðasta leik liðsins í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Eftir jafnvægi í upphafi þá sigldu Ítalir hægt og rólega framúr. Hittni þeirra var ógurleg og það var alveg sama hvað Ísland reyndi þá hittu Ítalirnir ótrúlega vel. Lokatölur 83-102 og Ísland þarf að vinna Breta til að komast áfram. Körfubolti 2. júlí 2026 21:33
„Frábært að fá Martin aftur“ Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, er hæstánægður með að hafa endurheimt Martin Hermannsson fyrir mikilvæga leiki gegn Ítalíu og Bretlandi í undankeppni HM. Sigur í öðrum hvorum leiknum kemur Íslandi á lokastig undankeppninnar. Körfubolti 1. júlí 2026 22:30
„Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Mörg lið höfðu samband við Hilmar Smára Henningsson þar sem hann var samningslaus hjá Stjörnunni. Hann skoðaði aðra möguleika en endaði á að framlengja samning sinn við Stjörnuna. Körfubolti 1. júlí 2026 16:15
„Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Tryggvi Snær Hlinason hefur ásamt norskum samherja sínum búið til norræna menningu í spænska körfuboltaliðinu Bilbao Basket. Hann nýtur lífsins á Norður-Spáni en er nú mættur til Íslands til að hjálpa landsliðinu að komast á HM í fyrsta sinn. Körfubolti 1. júlí 2026 08:00
„Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Elvar Már Friðriksson mun líklega á næstu dögum ákveða næsta skref sitt á körfuboltaferlinum, eftir dvöl sína í Póllandi og óvænt stopp á Tenerife í lok leiktíðar. Það skref mun hann taka með fjölskyldu sinni sem dvalið hefur á Íslandi í vetur. Körfubolti 29. júní 2026 20:31
Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks Íslenska körfuboltalandsliðið er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins eftir tvo leiki við Litháa í nýloknum glugga. Ísland er í fjórtánda sæti á nýjasta styrkleikalistanum á heimasíðu FIBA Basketball. Körfubolti 5. mars 2026 13:30
Saga Elvars er ótrúleg Fyrrum landsliðsmaður í körfubolta segir að það hafi verið ótrúlegt að fylgjast með íslenska landsliðinu í sigurleiknum gegn Litháum á föstudagskvöldið. Liðið standi vel að vígi í riðlinum í undankeppni HM. Sport 4. mars 2026 12:00
Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Bretar sitja eftir á botni riðils Íslands í undankeppni HM karla í körfubolta, eftir tap gegn Ítölum á útivelli í kvöld, 84-75. Körfubolti 2. mars 2026 20:33
Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Ísland vann magnaðan endurkomusigur gegn Litaén í fyrri leik liðanna á föstudag en varð að sætta sig við tap úti í Litaén í dag, í undankeppni HM karla í körfubolta. Körfubolti 2. mars 2026 18:36
Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Þrír leikmenn í Kaunas Zalgiris, toppliði litáensku úrvalsdeildarinnar, fengu leyfi frá félaginu til að spila með landsliði Litáen gegn Íslandi á eftir. Körfubolti 2. mars 2026 15:02
Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Trúin á því að íslenska karlalandsliðið í körfubolta geti lagt landslið Litáen að velli öðru sinni með skömmu millibili er til staðar þegar liðin mætast í undankeppni HM ytra í dag. Strákarnir okkar búast við særðum og árásargjörnum andstæðingum í leik þar sem starf landsliðsþjálfara Litáen gæti verið undir. Körfubolti 2. mars 2026 13:31
Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum í körfubolta fyrir seinni leikinn við Litáen í undankeppni HM. Körfubolti 1. mars 2026 13:47
Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn FIBA hefur nú valið tíu flottustu tilþrifin í undankeppni HM karla í körfubolta á föstudaginn og þar skarar Elvar Már Friðriksson fram úr. Körfubolti 1. mars 2026 11:31
Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Litáar eru í öngum sínum eftir tapið gegn „körfuboltasmáþjóð“ í Laugardalshöll í gærkvöld. Þessi mikla körfuboltaþjóð veltir nú vöngum yfir því hvernig Íslandi tókst að vinna upp 21 stigs forskot á síðustu sjö mínútum leiksins. Körfubolti 28. febrúar 2026 13:01
Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar „Endurkoma aldarinnar.“ Þannig lýsa erlendir miðlar því sem gerðist í Laugardalshöll í gærkvöld. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á svæðinu fyrir Vísi og tók frábærar myndir af úrslitastundinni. Körfubolti 28. febrúar 2026 11:03
Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti. Körfubolti 28. febrúar 2026 10:02
„Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. Körfubolti 27. febrúar 2026 22:58
Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Ísland vann stórkostlegan sigur á Litáen í kvöld. Liðið var yfir 20 stigum undir í seinni hálfleik en nagaði niður muninn og fékk sénsinn í lokin. Elvar Már Friðriksson tók sénsinn og tryggði sigurinn. Lokatölur 86-85. Körfubolti 27. febrúar 2026 22:38
Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85. Körfubolti 27. febrúar 2026 21:58
Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Erfitt var fyrir Kristinn Pálsson að horfa á tap Íslands fyrir Bretlandi í síðasta landsliðsglugga og hann er ákveðinn í að liðið verji heimavöllinn gegn Litáum í kvöld. Hann mætir til leiks í toppformi þrátt fyrir pastaát á Ítalíu. Körfubolti 27. febrúar 2026 14:02
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn