Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. mars 2026 14:48 Aðeins tveir línumenn hafa skorað meira í þýsku úrvalsdeildinni í vetur en Elliði Snær Viðarsson. getty/Michael Hundt Landsliðslínumaðurinn Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 23. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir frábæra frammistöðu í sigri Gummersbach á Kiel.
Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson stýrir, vann Kiel á útivelli á laugardaginn, 26-34. Heimamenn voru marki yfir í hálfleik, 15-14, en gestirnir unnu seinni hálfleikinn með níu marka mun, 11-20. Elliði fór mikinn í leiknum og skoraði níu mörk úr tíu skotum. Hann var markahæstur í liði Gummersbach sem hefur verið á afar góðu skriði að undanförnu. Eyjamaðurinn er í liði 23. umferðar þýsku deildarinnar ásamt samherja sínum, króatíska markverðinum Dominik Kuzmanovic. Hann varði tuttugu skot í leiknum gegn Kiel. View this post on Instagram A post shared by DAIKIN HBL (@daikin_hbl) Elliði hefur skorað 88 mörk í þýsku deildinni á þessu tímabili og er með 81 prósenta skotnýtingu. Hann er þriðji markahæsti línumaður deildarinnar á eftir þýsku landsliðsmönnunum Jannick Kohlbacher hjá Rhein-Neckar Löwen og Johannes Golla hjá Flensburg. Sigur Gummersbach á laugardaginn var fyrsti sigur liðsins í Kiel í tvo áratugi og jafnframt jöfnun á stærsta sigri Gummersbach á Kiel í sögunni. Gummersbach hefur unnið fimm leiki í röð og er í 6. sæti þýsku deildarinnar með 31 stig.
Þýski handboltinn Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira