Atvinnulíf

Í röngu starfi og van­sæl

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Við flest ofhugsum. En stundum er gott að kryfja hlutina í samtali við okkur sjálf og ákveða síðan skref í framhaldinu sem við trúum að séu okkur fyrir bestu. Til dæmis varðandi vinnuna.
Við flest ofhugsum. En stundum er gott að kryfja hlutina í samtali við okkur sjálf og ákveða síðan skref í framhaldinu sem við trúum að séu okkur fyrir bestu. Til dæmis varðandi vinnuna. Vísir/Getty

Vinnan er það stór partur af lífinu að það að vera óánægð í starfi er hreint út sagt ömurleg staða að vera í.

Að vera óánægð í starfi getur stafað af mörgu en það að horfast í augu við það getur jafnvel verið fyrsta skrefið í þá átt að við tökum ákvörðun um að gera eitthvað í því.

Því það að vera ánægð í starfi gefur gleði, orku og oft tækifæri til að blómstra miðað við þá styrkleika sem við búum yfir.

Því öll búum við yfir einhverju frábæru!

Hér eru algeng einkenni um að okkur sé ekki að líða nógu vel í núverandi starfi - séum einfaldlega ekki á réttri hillu.

Það sem líkaminn er að segja okkur

Það er með ólíkindum hvað líkaminn getur verið duglegur að gefa okkur merki um að eitthvað sé að. Við getum fundið fyrir þreytu, stressi, vanlíðan, vansæld, kvíða, óöryggi og svo framvegis. 

Ef við viljum kryfja það hvernig okkur líður í vinnunni okkar er því ágætis ráð að byrja á því að spyrja okkur: Hvaða upplýsingar er líkaminn að gefa mér?

Sunnudagsþunginn

Það kannast margir við að byrja að kvíða fyrir því á sunnudegi að fara að vinna á mánudegi. Þótt helgarfrí sé gott er þetta þó ekki eðlileg líðan.

Framtíðarsýnin óspennandi

Ef okkur líður þannig að við gætum engan veginn hugsað okkur að vera í þessu starfi eða sambærilegu næstu árin eða áratugina, erum við mjög líklega á rangri hillu í starfi. Því stundum er það jafnvel áskorunin: Ekki aðeins vinnustaðurinn sem við erum á nú, heldur einfaldlega starfsbrautin sem við erum á.

Laun eru ekki nóg

Vinna á að gefa okkur meira en laun. Eðlileg staða er að upplifa ánægju og gleði í vinnu. Ekki endilega í öllu sem við gerum í vinnunni, en almennt. Oft felst mesta ánægjan okkar í vinnunni í því að okkur finnst við vinna við eitthvað sem skiptir máli fyrir heildina.

Erfitt að fylla tankinn

Ef við upplifum okkur orkulaus alla daga og þreytt er eitthvað að. Því ánægja í starfi gefur okkur gleði, drifkraft og orku sem endurnýjast. Að líða alltaf eins og við séum í stanslausri áreynslu til að standa okkur vel í vinnunni er ekki rétt viðvarandi staða að vera í.

Endalaus niðurtalning

Ef við erum stanslaust að telja niður nánast mínútur eða daga fram að næsta fríi eða jafnvel næstu pásu erum við ekki í rétta starfinu.

Vanræksla

Þegar við erum vansæl aukast líkurnar á að við vanrækjum okkur sjálf. Ánægja í starfi getur þannig aukið líkurnar á að borða hollara, hreyfa okkur og svo framvegis.

Ekki við sjálf

Ef okkur líður eins og við getum ekki verið við sjálf eða séum ekki við sjálf í vinnunni getur það verið skýrt merki um að við séum ekki í umhverfi sem nærir okkur. Sálfræðilegt öryggi er til dæmis eitthvað sem við eigum að upplifa í starfi en það þýðir meðal annars að við eigum öll að geta verið við sjálf og þorað að tjá okkur.

Vantar tilgang

Ef okkur líður eins og starfið okkar skipti ekki máli eða jafnvel stangist á við það sem okkur finnst eða við trúum á, erum við ekki í rétta vinnuumhverfinu.

Hver er ég?

Eitt er að finnast við ekki vera við sjálf en annað er að vita ekki hver við erum. Ef okkur líður eins og við séum svo týnd að sjálfið okkar er óskýrt í okkar eigin huga er það merki um að mjög líklega þurfum við að staldra við og velta lífinu alvarlega fyrir okkur: Í leik og starfi.


Tengdar fréttir

Að langa til að skipta um vinnu en þora ekki

Það fylgir mannlegu eðli að hræðast stundum óvissuna eða eitthvað nýtt. Þessi ótti má þó ekki yfirtaka neitt hjá okkur, enda kemur oftast í ljós að hann er óþarfur með öllu.

Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða

Þegar það starfa saman nokkrar kynslóðir á sama vinnustað er eðlilegt að stundum ranghvolfi eldri starfsmenn augum yfir þeim yngri og öfugt, eða að þeim yngri finnist eitthvað fyndið, hallærislegt, leiðinlegt eða gamaldags sem eldri starfsmenn gera á meðan eldri starfsmönnum finnst sumt ungt fólk heldur kærulaust, ekki skilja alvöru málsins, ekki nógu vandvirkt eða samviskusamt og svo framvegis.

Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt

Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað.

Að undirbúa uppsögn og nýja vinnu

Eitt af því sem einkennir árstíðir hjá okkur er að við oft veljum að bíða með hluti fram að ákveðnum tíma. Að byrja í líkamsræktarátaki eða megrun í janúar er eflaust eitt af þekktari fyrirbærum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×