Frekari skakkaföll í leikhúsunum Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. mars 2026 15:57 Dansarinn Brian Gerke slasaði sig á ökkla í vikunni og því hefur lokasýningum Íslenska dansflokksins á Flóðreka verið frestað fram á haust. Vísir/Vilhelm/ÍD Lokasýningar Íslenska dansflokksins á verkinu Flóðreka í kvöld og annað kvöld í Borgarleikhúsinu hafa fallið niður vegna alvarlegra meiðsla dansarans Brians Gerke á ökkla. Sýningunum hefur verið frestað fram á haust svo Brian fái tíma til að jafna sig.
Vísir greindi frá því í gær að sýningum á harmleiknum Óresteiu í Þjóðleikhúsinu næstu tvær helgar hefði verið frestað vegna þess að Ebba Katrín Finnsdóttir, einn af fimm leikurum sýningarinnar, hefði rifið liðþófa. Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri sagði vonir standa til að Ebba væri búin að jafna sig á aðgerðinni helgina 20. til 22. mars og að fylgst yrði grannt með stöðu mála og miðakaupendur upplýstir ef ske kynni að eitthvað myndi breytast. „Það er aldrei hægt að segja alveg með vissu þegar fólk er að jafna sig og við gerum engar málamiðlanir þegar kemur að heilsu leikara eða gæðum sýninga,“ sagði hann um meiðslin. Reyndur dansari slasaður Nú hefur sú fregn borist að Þjóðleikhúsið sé ekki eina leikhúsið sem glímir við skakkaföll. Blaðamanni barst til eyrna að búið væri að fella niður síðustu tvær sýningarnar af danssýningunni Flóðreka hjá Íslenska dansflokknum sem áttu að vera í kvöld og annað kvöld. Kara Hergils, upplýsingafulltrúi Íslenska dansflokksins, staðfesti þau tíðindi í samtali við Vísi og sagði að Brian hefði slasast á ökkla í vikunni og meiðslin væru þess eðlis að fella hefði þurft niður sýningarnar. Brian er einn af dönsurum Flóðreka.Owen Fiene „Sýningarnar verða teknar aftur upp í haust til að gefa honum færi á að jafna sig,“ sagði Kara í samtali við Vísi. Brian Gerke er íslenskum dansunnendum vel kunnur, hann er danshöfundur og danskennari og hefur verið meðlimur Íslenska dansflokksins um árabil. Jafnframt er hann fagstjóri samtímadans við Listdansskóla Þjóðleikhússins og dósent við Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Flóðreka er eftir danshöfundinn Aðalheiði Halldórsdóttur og byggir á innsetningunni Flóði eftir Jón Þór Birgisson, betur þekktan sem Jónsa í Sigurrós. Jónsi hannaði ljósin og hljóðheiminn fyrir Flóðreka og jafnframt ilminn Flóð sem er notaður í dansverkinu. Jónsi á ilmhúsið Fischersund með systrum sínum en þau eru einmitt stödd í París að kynna nýjan ilm. Dansunnendur þurfa þó ekki að örvænta því um helgina er lokasýning á verkinu Garðinum eftir danshöfundatvíeykið Kor’sia. Í Garðinum er stóra sviði Borgarleikhússins umbreytt í grasivaxinn garð þar sem landslag líkama og mannlegar örsögur birtast og hverfa í flæði. Verkið hefur fengið góðar viðtökur og deilir kvöldi með stuttmyndinni Paradísarfuglum eftir Vikram Pradhan.
Borgarleikhúsið Dans Leikhús Tengdar fréttir Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. 13. febrúar 2026 07:00 Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Hátt í eitt þúsund sóttu um að komast í áheyrnaprufu sem Íslenski dansflokkurinn auglýsti. Listdansstjóri segir fjölda umsókna langt um fram það sem áður hefur sést og til marks um velgengni flokksins á alþjóðavísu. 25. janúar 2026 16:15 Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Dansverkið Flóðreka var frumsýnt síðastliðinn laugardag á nýja sviði Borgarleikhússins. Glæsilegustu listdansarar þjóðarinnar létu sig ekki vanta og fylgdust með sýningunni af aðdáun. 12. nóvember 2025 13:29 Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira
Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. 13. febrúar 2026 07:00
Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Hátt í eitt þúsund sóttu um að komast í áheyrnaprufu sem Íslenski dansflokkurinn auglýsti. Listdansstjóri segir fjölda umsókna langt um fram það sem áður hefur sést og til marks um velgengni flokksins á alþjóðavísu. 25. janúar 2026 16:15
Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Dansverkið Flóðreka var frumsýnt síðastliðinn laugardag á nýja sviði Borgarleikhússins. Glæsilegustu listdansarar þjóðarinnar létu sig ekki vanta og fylgdust með sýningunni af aðdáun. 12. nóvember 2025 13:29