Viðskipti innlent

Opna Lindex þar sem Úti­líf var

Árni Sæberg skrifar
Tölvuteikning af fyrirhugaðri verslun Lindex í Smáralind.
Tölvuteikning af fyrirhugaðri verslun Lindex í Smáralind. S4S

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa.

Í fréttatilkynningu frá S4S segir að framkvæmdir á rýminu hefjist á næstu dögum og stefnt sé á opnun á Lindex í Smáralind í maí næstkomandi.

„Netverslunin lindex.is opnaði í byrjun vikunnar og hafa móttökurnar og skráning í Lindex klúbbinn verið framar vonum. Við erum því full tilhlökkunar að geta opnað glæsilega verslun í Smáralind í vor. Samstarfið við Smáralind hefur verið afar farsælt í gegnum árin, en S4S rekur nú þegar verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið og AIR í Smáralind,“ er haft eftir Tinnu Sigrúnu Pétursdóttur, markaðsstjóra S4S.

„Við erum afar spennt fyrir opnun nýrrar Lindex verslunar í Smáralind í vor. Lindex hefur notið mikilla vinsælda í Smáralind í gegnum árin og byggt upp sterkan og tryggan viðskiptavinahóp sem mun eflaust gleðjast yfir því að vörumerkið haldi áfram rekstri sínum í Smáralind,“ er haft eftir Söndru Arnardóttur, markaðsstjóra Smáralindar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×