Tíska og hönnun

Heitasti keramiker landsins í fíling

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hildur Gunnlaugsdóttir áhrifavaldur og arkítekt og Charlotte Biering markaðsmeistari glæsilegar á opnun Rammagerðarinnar. 
Hildur Gunnlaugsdóttir áhrifavaldur og arkítekt og Charlotte Biering markaðsmeistari glæsilegar á opnun Rammagerðarinnar.  Debora Karalic

Menningarlífið iðaði í Reykjavíkurborg á fimmtudag síðastliðinn og kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta á opnun Rammagerðarinnar á Skólavörðustíg. 

„Rammagerðin opnaði endurbætt verslunar- og sýningarrými á neðri hæð Skólavörðustíg 12 síðastliðinn fimmtudag. 

Heilmikil stemning var á opnuninni, þar sem gestir fengu sérstaka Rammagerðiskokteila og hlustuðu fagra tóna frá DJ Komma,“ segir í fréttatilkynningu. 

Á viðburðinum sýndi Bjarni Viðar frá nýjum keramík munum en hann er einn sá allra heitasti í keramik bransanum og hafa vörur hans notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. 

Ilmvatnsgerðin Ilmur & Sjór bauð gestum líka að kanna nýjustu ilmi úr eigin smiðju. 

„Við erum gríðarlega ánægð með endurbæturnar á rýminu, sem áður hýsti lagerinn okkar og skrifstofu. 

Nú getum við boðið viðskiptavinum okkar á stærra vöruúrval frá frábærum íslenskum merkjum og hýst fjöldan allan af listamönnum og handverksfólki í nýja sýningarrýminu okkar,“ segir jafnframt í tilkynningunni. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnunarteitinu: 

Dýrleif Örlygsdótir, Skjöldur Sigurjónsson og Lydía Kims.Debora Karalic

Bjarni Viðar Sigurðsson keramiker með nýtt úr sinni smiðju.Debora Karalic

Gestir mættu í sínu fínasta pússi. Unnur Guðjónsdótti glæsileg. Debora Karalic

Nicholas Shaber flottur.Debora Karalic

Þórey, Marta og Kristín Feldspæjur í fíling. Debora Karalic
Heiðar Sigurðsson feldskeri og Honey Grace Zanoria verslunarstjóri Rammagerðarinnar. Debora Karalic
Lydía Kims framkvæmdastjóri við verslunina á Skólavörðustíg 12.Debora Karalic
Farmers hjónin Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson.Debora Karalic
Skálað og rabbað.Debora Karalic
Glaðir gestir.Debora Karalic
Hildur Gunnlaugs skoðar!Debora Karalic
Ilmur og sjór.Debora Karalic





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.