Enski boltinn

„Mér finnst Salah vera á­hyggju­efni“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það eru flestir sammála um það að Mohamed Salah er ekki lengur sami leikmaður og hann var. Frammistaðan í vetur bendir í það minnsta til þess.
Það eru flestir sammála um það að Mohamed Salah er ekki lengur sami leikmaður og hann var. Frammistaðan í vetur bendir í það minnsta til þess. Getty/Alex Livesey

Mohamed Salah var tekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar Liverpool tapaði 1-0 á móti Galatasaray í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Kjartan Henry Finnbogason hefur ákveðna skoðun á stórstjörnu Liverpool sem hefur ekki verið að finna sig í ár eftir að hafa verið besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

„Mér finnst Salah vera áhyggjuefni,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason í Meistaradeildarmörkunum í gær.

„Hann var fínn í pressunni þessar fyrstu mínútur en var svo tekinn út af eftir sextíu mínútur. Þeir voru hættir að gefa á hann,“ sagði Kjartan Henry.

„Maður bara tók eftir því. Það var oft það sem að hann var að fá boltann í fínum stöðum og bara missa hann. Mér finnst bara rosalega dregið af honum á þessu tímabili,“ sagði Kjartan Henry.

„Svo var Florian Wirtz heldur ekki góður í þessum leik. Hann fékk oft góðar stöður en var flögrandi út um allan völl og fór illa með gott færi,“ sagði Kjartan.

Hann hefur samt trú á því að Liverpool fari áfram.

„Þetta var fínn leikur hjá Gala en ég held þetta sé ekki nóg,“ sagði Kjartan Henry eins og sjá má hér fyrir neðan.

Klippa: „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×