Atvinnulíf

Þegar ó­vissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ef það er eitthvað sem mun einkenna atvinnulífið um allan heim næstu misseri og ár, þá eru það breytingar. Sem fela þá líka í sér ný tækifæri. Nú ríður á að æfa okkur í að takast á við óvissu og breytingar.
Ef það er eitthvað sem mun einkenna atvinnulífið um allan heim næstu misseri og ár, þá eru það breytingar. Sem fela þá líka í sér ný tækifæri. Nú ríður á að æfa okkur í að takast á við óvissu og breytingar. Vísir/Getty

Það getur verið erfitt að lifa og hrærast í stressi og óvissu í mjög langan tíma. Sem þó getur verið fylgifiskur í atvinnulífinu þar sem breytingar eru oft á tíðum nauðsynlegar og geta líka tekið tíma.

Nokkur augljós dæmi má nefna. Til dæmis samrunaviðræður Arion banka og Kviku sem hafa verið í gangi um hríð. Fyrir þann tíma höfðu reglulega birst fréttir af mögulegum viðræðum eða samrunum ýmissa aðila. Fyrir starfsfólk í bankageiranum er þetta orðið nokkuð langur tími.

Það sama á við um breytingar í fjölmiðlaumhverfinu. Ekki síst nú þegar tilkynnt hefur verið um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Áætlað er að ferlið taki sex til tólf mánuði. Jafnvel lengur.

Enn ein breytingin svífur yfir vötnum. En það eru tæknibreytingarnar sem fram undan eru og sumar hverjar þess eðlis að fyrirséð er að heilu fyrirtækin og störfin munu umbreytast. Ekki síst nú, þegar styttist í að næsta kynslóð gervigreindarinnar mæti til leiks.

Góðu ráð dagsins byggja á því hvernig við getum sjálf tekist á við tíma óvissu og breytinga. 

Við spyrjum:

Hvernig getum við spornað gegn vanlíðan eða streitu sem getur fylgt því þegar óvissa eða breytingar taka langan tíma?

Hér eru nokkur góð ráð:

1. Að samþykkja óvissuna

Fyrsta góða ráðið felst í því að samþykkja óvissuna. Því óvissa er og verður alltaf partur af lífinu. Sem og sú staðreynd að við getum ekki stjórnað öllu.

Þegar fólk samþykkir að ákveðin óvissa sé óhjákvæmileg verður auðveldara að beina athyglinni að því sem er undir eigin stjórn.

2. Á okkar hendi

Þótt margt í kringum okkur sé óljóst getum við oft stjórnað ákveðnum hlutum, eins og daglegum verkefnum, eigin viðbrögðum og því hvernig við skipuleggjum daginn. Að einbeita sér að þessum þáttum getur dregið úr streitu.

3. Val og mat á upplýsingum

Í óvissu skiptir miklu máli að vera upplýst en vanda okkur við að sanka að okkur áræðanlegum upplýsingum en skilja hitt eftir. Því oft fylgir tímabilum sem þessum ákveðinn kjaftagangur. Fólk gleymir sér í vangaveltum og kenningum um alls kyns hluti sem ekkert endilega eiga við rök að styðjast og geta aukið á kvíða og vanlíðan.

4. Þak á: Kannski, hvað ef, mögulega, en...?

Það er eðlilegt og mannlegt að vera mikið með hugann við breytingar ef okkur finnst mikil óvissa fylgja þeim. Hins vegar skiptir máli hversu mikið við veltum okkur upp úr hlutunum, hversu mikil orka fer í vangavelturnar. 

Þar erum við sjálf við stjórnvölinn og því mæla sérfræðingar með því að við setjum okkur mörk um hversu mikið við leyfum okkur að velta fyrir okkur því sem kannski mögulega einhvern tímann, gæti gerst…. og beinum athyglinni frekar að núinu.

5. Rútínan okkar

Þótt breytingar séu yfirvofandi eigum við ekki að láta þær hafa svo mikil áhrif á okkur að okkar eigin rútína raskist. Þegar okkur er órótt er hins vegar eðlilegt að eitthvað raskist, til dæmis svefn. 

Þess vegna er gott að vera mjög meðvituð um það á þessum tíma að rútínan okkar í mat, hreyfingu, svefni og svo framvegis skiptir jafnvel enn meira máli.

6. Ekki bara ræktin heldur sjálfs-ræktin

Það sama á við um allt sem snýr að okkar eigin sjálfsumönnun eða sjálfsrækt. Margir tengja sjálfsræktina við hreyfingu eða hollt mataræði en hérna er ekkert síður verið að tala um hluti eins og að taka hlé frá fréttum, vera dugleg að næra okkur í jákvæðum félagsskap eða gera hluti sem veita okkur gleði og ánægju. Hvíld hugans skiptir miklu máli.

7. Vinir og vandamenn

Samskipti við fjölskyldu, vini eða samstarfsfólk geta hjálpað fólki að vinna úr áhyggjum. 

Að tala við aðra getur dregið úr ótta- og kvíðatilfinningu og í svona aðstæðum eigum við líka að vera ófeimin við að biðja um stuðning.

8. Bjartsýni og raunsæi fara saman

Það skiptir miklu máli að horfa til framtíðar með raunhæfum hætti. Sem felur þá líka í sér að hugsa:

Óvissu og breytingum fylgja líka ný tækifæri.

Í stað þess að einblína á það sem okkur finnst óþægilegt eða gæti farið úrskeiðis, getur það verið skemmtilegt, gagnlegt og gefandi að velta fyrir okkur hvaða möguleikar eru hugsanlega að opnast.


Tengdar fréttir

„Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“

„Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“

Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig?

Það eru eðlileg og mannleg viðbrögð hjá okkur að bregða svolítið þegar tilkynnt er um enn einar breytingarnar í vinnunni. Til dæmis að einhver sé að hætta eða byrja, að nú eigi að færa til þennan eða hinn eða færa til verkefni eða ábyrgð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×