Innlent

Gaura­gangur í Mennta­skólanum að Laugar­vatni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Aðalleikarnir, sem eru þau Vésteinn og Hjördís Katla.
Aðalleikarnir, sem eru þau Vésteinn og Hjördís Katla. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er mikill gauragangur á meðal nemenda Menntaskólans að Laugarvatni þessa dagana en ástæðan er sú að þau eru að frumsýna í kvöld leikritið Gauragang í félagsheimilinu Aratungu í Bláskógabyggð.

Æfingar á verkinu hafa staðið yfir síðustu vikur í Aratungu og gengið vel en fjölmargir nemendur taka þátt í sýningunni, sem er söngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson, sem kom út 1994.

Vésteinn Loftsson og Hjördís Katla Jónsdóttir fara með aðalhlutverkin. Er það ekkert mál eða?

„Jú, jú, það er nú svolítið mál en bara gaman líka. Vésteinn er með aðra hverja línu í leikritinu, já, já, þetta er mjög gaman, rosalega gaman,” segir Hjördís Katla.

Hvað er skemmtilegast við þetta?

„Bara allir saman og æfingarnar , syngja og dansa baksviðs og á sviðinu, þetta er allt mjög gaman,” segir Vésteinn.

Leikstjórarnir eru alsælir með leikarahópinn.

Þetta er bara gleðisprengja, það eiga bara allir eftir að skemmta sér 100% , þetta er rosalega fyndið og þetta eru frábærir krakkar,” segir Sigríður Agnarsdóttir, leikstjóri.

Leikstjórarnir Sigríður og Óskar Snorri.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Þetta gerist ekki betra, við erum svo stutt frá öllu og svo er lifandi hljómsveit úr skólanum, sem er frábær. Það er svo mikill metnaður hérna, já og þetta er svo mikil fjölskylda líka, þetta eru allt svo góðir vinir,” segir Óskar Snorri Óskarsson, leikstjóri.

Leikritið er sýnt í félagsheimilinu Aratungu í Reykholti.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimasíða skólans

Hljómsveitin, sem spilar er skipuð nemendum skólans.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hér eru upplýsingar um sýninguna og hvenær sýningar verða.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×