Leikjavísir

Notch setur glæsihúsið á sölu

Agnar Már Másson skrifar
Svíinn hyggst selja húsið á nákvæmlega jafn mikið og hann keypti það á.
Svíinn hyggst selja húsið á nákvæmlega jafn mikið og hann keypti það á. Samsett Mynd

Markus Persson, höfundur Minecraft, hefur sett stórhýsi sitt í Beverly Hills í Kaliforníu á sölu. Húsnæðið er verðsett á sjötíu milljónir bandaríkjadala, eða 8,5 milljarða króna.

Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er Los Angeles Times greina frá.

Þrátt fyrir það gæti húsnæðið orðið það dýrasta sem selst hefur í hverfinu á þessu ári enda er um að ræða eina verðmætustu fasteign sem er til sölu í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Um er að ræða rúmlega tvö þúsund fermetra stórhýsi með einkaskemmtistað og sérstöku sælgætisgerbergi.

Þegar eignin var keypt árið 2014 voru lúxusíbúðir seldust lúxusíbúðir af þessu tagi (svokölluð „spec houses“) eignir eins og heitar lummur að sögn LA Times. Aftur á móti segir miðillinn að markaður fyrir lúxusíbúðir í landinu hafi kólnað allverulega á síðustu árum á sama tíma og meðalvirði húsnæðis í LA hefur tvöfaldast.

Skyldi nokkur kaupa þetta hús yrði það næstdýrasta hús sem selst hefur í LA á eftir Casa Encantada, sem auðkýfingurinn Peter Thiel festi kaup á fyrir 130 milljónir dala á uppboði í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.