Kemur alltaf í Þór Valur Páll Eiríksson skrifar 17. mars 2026 11:30 Aron Einar spilaði stuttlega fyrir Þór sumarið 2024. Þjálfari Þórsara segist eiga virkt samtal við Aron sem sé ávallt velkominn heim í Þorpið. Þór fótbolti Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs á Akureyri, segir Aron Einar Gunnarsson ávallt vera velkominn heim í Þorpið. Ljóst sé að ákveði Aron að snúa heim til Íslands spili hann með uppeldisfélaginu.
Aron Einar hefur verið orðaður við heimkomu sökum ástandsins í Katar, þar sem hann spilar fyrir Al-Gharafa. Stríð í Íran hefur haft áhrif á stöðugleika á svæðinu. Þór leikur í efstu deild í sumar í fyrsta sinn frá árinu 2014 og telja margir líkur á að Aron hafi áhuga á að leika með uppeldisfélaginu í Bestu deildinni. Aron Einar kom til landsins ásamt fjölskyldu sinni á dögunum þar sem hann var á meðal þeirra sem flúðu Miðausturlönd sökum stöðunnar. Hann stoppaði þó ekki lengi og var kallaður aftur þangað suðureftir af félagi sínu. „Við erum alltaf í sambandi. Ef hann er ekki að spila úti og er ekki á samningi úti þá spilar hann með Þór. Hann er farinn aftur út núna, þeir eru búnir að kalla hann aftur til starfa. Eins og staðan er núna kemur hann ekkert fyrir mót,“ segir Sigurður í samtali við Vísi. „En hvernig svo sem hans mál verða, ef hann rennur út á samningi í sumar og fær ekki nýtt lið mun hann jafnvel koma til okkar um mitt tímabil. En það er bara eitthvað sem við bíðum með og sjáum. Það væri algjör bónus, helvíti stór bónus, en það er eitthvað sem við erum í rauninni ekkert að spá í. Hann er bara að lifa sínu draumalífi úti sem atvinnumaður og við bara bíðum. Hann kemur í Þór þegar hann vill koma í Þór,“ segir Sigurður. Ákveði Aron að koma heim til að spila sé aðeins eitt lið í boði. „Hann mun aldrei spila fyrir annað lið á Íslandi. Ef hann spilar hér í framtíðinni þá er það hér í Þór. Það er alveg klárt,“ segir Sigurður.
Þór Akureyri Besta deild karla Katarski boltinn Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings