„Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 19:55 Dominik Szoboszlai hefur skorað fjögur mörk beint úr aukaspyrnum á þessu tímabili. getty/Robbie Jay Barratt Dominik Szoboszlai, markaskorari Liverpool, var afar ósáttur eftir 1-1 jafnteflið við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann segir að ef Liverpool heldur áfram á sömu braut yrði gott fyrir liðið að komast í Sambandsdeild Evrópu.
Szoboszlai kom Liverpool yfir á 18. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu. Allt benti til þess að markið myndi duga heimamönnum til sigurs en Richarlison var á öðru máli og jafnaði fyrir gestina á lokamínútu leiksins. „Þetta eru mikil vonbrigði. Ég veit ekki hvað gerðist. Ég hef ekkert að segja. Ég veit ekki hversu oft á tímabilinu þetta hefur gerst á lokamínútunni. Við verðum að vakna,“ sagði Szoboszlai eftir leikinn á Anfield í dag. „Ég er bara flatur. Við verðum að vakna því ef við höldum svona áfram ættum við að vera sáttir með að vera í Sambandsdeildinni. Ég veit ekki af hverju þetta gerist.“ Szoboszlai sagði að Liverpool hefði misst tökin á leiknum í seinni hálfleik. „Mér fannst við spila mjög vel í fyrri hálfleik. Við stjórnuðum öllum leiknum og þeir sköpuðu varla færi fyrir utan 1-2 skalla. Við gerðum ekki sömu hlutina í seinni hálfleik. Við munum setjast niður, og þetta er erfiðasti tíminn, og við verðum að standa saman,“ sagði Szoboszlai sem var spurður hvort hann hefði heyrt stuðningsmenn Liverpool púa á liðið. „Ég heyrði það ekki en ég skil stuðningsmennina. Við erum ekki að spila eins og við eigum að gera. Þeir ættu að standa við bakið á okkur því á síðasta tímabili urðum við meistarar þegar fjórir leikir voru eftir. Styðjið okkur í mótlæti. Það er enn tími til að sýna hversu mikið okkur langar þetta. Við verðum að sýna samstöðu og berjast fyrir félagið.“ Liverpool er í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 49 stig. Næsti leikur Liverpool er gegn Galatasaray í seinni viðureign liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Tyrknesku meistararnir unnu fyrri leikinn, 1-0.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Fleiri fréttir „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Sjá meira