Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2026 22:01 Tolu Arokodare fagnar hér marki sínu í kvöld en það mark tryggði Úlfunum jafntefli. Getty/Julian Finney Botnlið Wolves heldur áfram að bíta frá sér í ensku úrvalsdeildinni og það munaði litlu að liðið ynni sinn þriðja sigur í röð í kvöld.
Brentford og Wolves gerðu 2-2 jafntefli eftir að heimamenn í Brentford komust í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Brentford hefði verið aðeins tveimur stigum frá fimmta sætinu (Liverpool) með sigri en missti frá sér tveggja marka forskot. Michael Kayode kom Brentford í 1-0 með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Keane Lewis-Potter á 22. mínútu. Á 37. mínútu bætti Igor Thiago við öðru marki eftir óeigingjarna sendingu frá Dango Ouattara. Thiago var valinn í brasilíska landsliðið í dag og hélt upp á það með marki. Brenford var því 2-0 yfir í fyrri hálfleik og þrjú stig nánast í vasanum. Botnlið Úlfanna hefur sýnt mikinn karakter í síðustu leikjum og það var framhald á því í kvöld. Adam Armstrong minnkaði muninn mínútu fyrir hálfleik og Tolu Arokodare jafnaði síðan með skalla eftir fyrirgjöf João Gomes á 77. mínútu. Úlfarnir voru mun betra liðið í seinni hálfleik og áttu bæði skot í stöng og slá. Þeir voru því hársbreidd frá sigri. Wolves-liðið er nú tólf stigum frá öruggu sæti og á aðeins sjö leiki eftir. Vonin er því afar veik en það er gaman að sjá að leikmenn liðsins eru ekki búnir að gefast upp og eru allt annað en auðveldur andstæðingur þessa dagana.
Enski boltinn Wolverhampton Wanderers Brentford FC Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sjá meira