Íbúakosning væri einföld sáttaleið í Skagafirði Þórarinn Þórarinsson skrifar 23. mars 2026 06:42 Daniel Þór telur sig færan í flestan sjó og kastaði sér út í undirbúning undirskriftasöfnunar í Skagafirði þegar meirihluti sveitarstjjornar felldi tillögu um að framhald framkvæmda við nýtt Menningarhús færi í íbúakosningu. Mynd/Aðsend „Ég hef fulla trú á því að niðurstaða kosninga muni leiða í ljós andstöðu við Menningarhúsið í núverandi mynd,“ segir Sauðkrækingurinn Daniel Þór Gunnarsson, vongóður um að undirskriftasöfnun geti þrýst á lausn harkalegrar deilu um nýtt menningarhús í Skagafirði með íbúakosningu samhliða sveitarstjórnarkosningunum í maí. „
Mér fannst ég verða að gera eitthvað til að koma sjónarmiðum mínum og umræðunni í sveitarfélaginu á framfæri þegar ég frétti að meirihluti sveitarstjórnar hefði hafnað tillögu um að í vor yrði efnt til íbúakosningar um hvort halda eigi áfram uppbyggingu menningarhúss á Sauðárkróki.“Byggðalistinn stóð að tillögunni sem var felld á síðasta sveitarstjórnarfundi og varð til þess að Daniel Þór sá ekki annan leik í stöðunni en að blása til undirskriftasöfnunar. Sérkennileg forgangsröðun „Mér finnst mikil synd að helsta forgangsatriði meirihluta sveitarstjórnar sé að byggja menningarhús sem að margra mati uppfyllir ekki þarfir samfélagsins í dag,“ segir hann. „Á meðan ungir foreldrar fá ekki daggæslu fyrir börnin sín eftir fæðingarorlof og verða á meðan fyrir verulegri tekjuskerðingu með tilheyrandi álagi. Hann telur einnig augljóst að byggingar- og rekstrarkostnaður Menningarhússins muni fara verulega fram úr áætlunum sem aftur minnki svigrúm „til þess að lækka fasteignaálögur á íbúa í Skagafirði.“Daniel Þór segist sannfærður um að ef af undirskriftasöfnuninni verður þá muni hún draga fram mikla andstöðu við að Menningarhúsið rísi í fyrirhugaðri mynd. „Þetta þarf samt ekki að þýða að íbúar séu mótfallnir menningarhúsi yfir höfuð.“ Sér engar hindranir Þótt harka sé að færast í átökin og orðaskakið um framkvæmdina segist Daniel Þór, aðspurður, ekki eiga von á að reynt verði að leggja steina í götu þeirra sem vilja knýja á um íbúakosningu í krafti undirskrifta.„Að mínu mati væri það fásinna, þar sem ég get ekki séð að það muni hafa neitt annað en jákvæð áhrif á verkefnið og ímynd sveitarfélagsins að íbúar fái að segja sinn hug og á sama tíma gefa íbúum kost á að fá hlutdeild í verkefninu.“Eins og Vísir hefur þegar fjallað um metur Einar Einarsson, forseti sveitarstjórnar og einn helsti hvatamaðurinn að því að framkvæmdir við menningarhúsið hefjist sem fyrst, stöðuna allt öðruvísi en Daníel Þór og segist engar áhyggjur hafa af söfnun undirskrifta. Fólk fylgi sannfæringunni „Ég hef algjörlega fulla trú á því að mikill meirihluti Skagfirðinga styðji þessa framkvæmd og við erum með áætlað fjármagn í þetta.“Viðmælendum Vísis um þetta hitamál í Skagafirði ber flestum saman um að raddir þeirra sem vilji að menningarhúsið rísi sem fyrst séu almennt háværari og fyrirferðarmeiri á samfélagsmiðlum. Einar Eðvald Einarsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar, er mjög áfram um byggingu Menningarhússins. Hann telur meirihluta íbúanna að baki sér og segist engar áhyggjur hafa af undirskriftasöfnuninni.Vísir/Vilhelm Þetta breyti því þó ekki að margir beri óánægju sína í hljóði til þess að verða ekki undir hraðlest byggingarsinna. „Ég treysti á að fólk geti staðið með sinni sannfæringu óháð skoðunum annarra,“ segir Daniel Þór þegar hann er spurður hvort hætta sé á því að umræðan sé að komast á það hitastig að fólk muni jafnvel veigra sér við að setja nafn sitt á listann. Meirihlutinn á fullri ferð „Eru ekki öll málefni sem brenna á íbúum kosningamál?“ spyr Daniel Þór þegar hann er spurður hvort það stefni í að rifrildið um menningarhúsið verði fyrirferðarmikið kosningamál í Skagafirði.„Það verður bara að koma í ljós hvað brennur á fólki fyrir kosningar í vor. Það virðist samt vera þannig að Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur séu að keyra þetta áfram núna fyrir kosningar og þar af leiðandi er þessi bygging mikið í umræðunni.“Daniel Þór segir hins vegar að vanda þurfi til verka og ekki keyra hlutina óvandað í gegn. Hvað slík vinnubrögð varðar segir hann sporin hræða og bendir á sýninguna 1238 sem hafi farið langt fram úr kostnaðaráætlun. Sporin hræða „Óvissa ríkir um sýninguna og hverjar afleiðingar hennar verða fyrir sveitarfélagið. Mikil leynd hvílir yfir þessu verkefni og íbúar Skagafjarðar hafa enn ekki fengið svör við því sem er í gangi þar og kostnaði sveitarfélagsins við það. Ég tel að fólk í Skagafirði sé orðið þreytt á því að fá ekkert um stóru málin að segja þar sem svona stórar framkvæmdir hafa mikil áhrif á skuldastöðu sveitarfélagsins,“ segir Daniel Þór og bætir við að á sínum tíma hafi íbúar ekki fengið neitt að segja um sýndarveruleikasafnið 1238.„Mér finnst því mikilvægt að íbúar sveitarfélagsins fái góða kynningu á menningarhúsinu og fái að kjósa um það hvort þeir vilji þetta tiltekna menningarhús eða ekki. Ég held að mest sátt náist um málið með lýðræðislegri niðurstöðu og að fólk fái að kjósa um málið.“
Skagafjörður Menning Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira