Atvinnulíf

Það getur allt gerst ef for­stjórinn vakir fram yfir klukkan tíu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, segist meta rútínu betur í dag en áður. Því eitt sinn fannst henni hún rútína vera algjört fangelsi og óspennandi. Guðbjörg er hæg í gang á morgnana og ekki mikil morgunmanneskja.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, segist meta rútínu betur í dag en áður. Því eitt sinn fannst henni hún rútína vera algjört fangelsi og óspennandi. Guðbjörg er hæg í gang á morgnana og ekki mikil morgunmanneskja. Vísir/Vilhelm

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn!

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna 07.07 og snúsa einu sinni. Ég var að kaupa mér snjallúr þannig að þessa dagana er ég spennt að vakna og sjá „sleep score“ á úrinu eftir nóttina. Hef hæst komist í 95 og lægsta var 61, þá var útvarpsviðtal eldsnemma um morguninn að kynna nýja vernd hjá okkur í Verði.

Ég kann alltaf betur og betur að meta rútínu með aldrinum. Áður fannst mér hún algjört fangelsi, eins og allt væri ákveðið fyrir fram og ekkert spennandi eða óvænt gæti gerst. 

En ég er löngu búin að átta mig á því að árangur og raunverulegar breytingar nást ekki öðruvísi en með rútínu og miklum aga.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég er hæg í gang á morgnanna og ekki mikil morgunmanneskja. Yfirleitt byrja ég á að græja mig fyrir daginn áður en ég vek dóttur mína sem er 9 ára. Við hefjumst handa við að undirbúa okkur fyrir daginn í rólegum heitunum og spjöllum um það sem er fram undan. En almennt eru morgnarnir okkar þó frekar viðburðalitlir.“

Á skalanum 0-10, hversu góð ertu í að segja brandara?

„Ég gef mér 8,7 í einkunn. Það verður auðvitað að vera gaman, annars er svo leiðinlegt.“

Guðbjörg Heiða er yfirleitt með eitt eða tvö verkefni sem eru algjör forgangsverkefni en almennt finnst henni best og skemmtilegast að vinna með öðrum. Þar sem hópurinn ákveður sameiginlega forgangsröðun verkefna og hvernig ætlunin er að vinna þau.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Síðustu dagar hafa farið í að kynna nýja vernd, stuðningsleyfi, sem er ætluð fyrirtækjum til að auðvelda þeim að styðja starfsfólk sitt sem er þolendur ofbeldis í nánum samböndum. 

Við erum líka í fræðsluátaki í samvinnu við Bjarkarhlíð um hvernig megi vera vakandi fyrir merkjum sem benda til að starfsmaður gæti verið að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi og hvernig sé best að bregðast við. En vinnustaðurinn er oft eini snertiflötur þolanda ofbeldis í nánu sambandi fyrir utan heimilið og því getur stuðningur þar skipt sköpum.

Við héldum fyrsta fræðslufundinn í vikunni og það var ótrúlega gleðilegt að sjá hversu mörg mættu, en það er greinilegt að vinnustaðir vilja fræðast um hvernig þeir geta stutt mannauð sinn í þessum aðstæðum betur.

Við viljum vera til staðar og erum markvisst að horfa til þess hvað skiptir viðskiptavini okkar máli og hefur samfélagslegan ávinning.

Í fyrra bættum við neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis við heimilistryggingarnar okkar sem vakti mikla athygli enda í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingafélag gerir það.

Þetta er bæði eitthvað sem við bættum við tryggingarnar án viðbótarkostnaðar fyrir viðskiptavini.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég skipulegg mig með teyminu mínu en mér finnst alltaf langbest að vinna með öðrum. 

Við setjumst saman, forgangsröðum verkefnum og ákveðum hvernig við ætlum að vinna þau. Ég hef mjög gaman af góðum samtölum og þrífst vel þegar það er nóg að gera.

Yfirleitt er ég með eitt eða tvö verkefni sem eru algjör forgangsverkefni og passa sérstaklega vel upp á að þau séu í réttum farvegi.“



Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Annaðhvort sofna ég með dóttur minni rétt fyrir klukkan tíu en ef ég næ að halda mér vakandi í gegnum það ferli þá getur allt gerst. 

Kvöldin eru besti tíminn. Þá er hægt að lesa og hlusta á bækur en það er eiginlega ótrúlegt líka hvað ég verð vitur eftir klukkan tíu, ólíkt því hvernig ég er eldsnemma á morgnana.“


Tengdar fréttir

„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“

Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður.

Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna

Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir.

„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“

Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi.

Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn

Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins.

Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu

Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×