„Það eina sem gat togað mig í einhvern alvöru fótbolta“ Stefán Árni Pálsson skrifar 24. mars 2026 08:32 Birkir Már Sævarsson leikur með Aftureldingu í sumar í Lengjudeildinni. Vísir/Sigurjón Knattspyrnumaðurinn Birkir Már Sævarsson segist aðeins hafa viljað spila knattspyrnu í sumar ef hann hefði tækifæri til að leika með yngri bróður sínum. Hann samdi um helgina við Aftureldingu.
Birkir mun í sumar spila með bróður sínum, Aroni Elí Sævarssyni, sem verið hefur lykilmaður og fyrirliði í Mosfellsbænum og leikið sex tímabil með Aftureldingu. Birkir, sem á að baki 103 A-landsleik og spilaði til að mynda á EM í Frakklandi 2016 og HM í Rússlandi 2018, er orðinn 41 árs gamall en lætur engan bilbug á sér finna. Hann kvaddi uppeldisfélag sitt Val, í annað sinn á ferlinum, haustið 2024 og flutti til Svíþjóðar en hélt áfram að spila þar og hefur svo einnig æft og spilað með KH eftir að hafa snúið aftur heim til Íslands. Á ferlinum hefur hann einnig spilað með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð en nú tekur Birkir slaginn með Aftureldingu. Hraðinn á eftir að koma „Svo lengi sem ég hef gaman af þessu og skrokkurinn helst svona nokkurn veginn heill, þá bara hugsa ég að ég eigi að halda áfram að sprikla,“ segir Birkir í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi. En í hvernig standi er þessi margreyndi landsliðsmaður? „Ég veit nú ekki með hraðann og er ég náttúrulega svo sem ekki búinn að æfa alveg eins og Lengjudeildar- eða úrvalsdeildarleikmaður núna síðustu mánuði. Þannig að ég er nú sennilega eitthvað aðeins hægari akkúrat núna. Skrokkurinn er nú bara eins góður og hann getur orðið.“ En á Birkir leik með yngri bróður sínum? „Við eigum einhvern leik með Val á einhverju undirbúningstímabili. Ég man ekki alveg hversu margir þeir voru, en þeir eru ekkert rosalega margir og engir alvöruleikir.“ Leggst vel í hann Birkir segist aðeins hafa verið til í slaginn þar sem tækifæri gafst til að spila með Aroni. Birkir er fæddur 1984 en Aron 1997. „Það sem var það eina sem gat togað mig í einhvern alvöru fótbolta var bara litli bróðir. Ég held að ég hafi bara afþakkað þetta góða boð frá Aftureldingu ef að hann hefði ekki verið þarna. Fyrst þegar að Maggi hringdi í mig þá var ég ekkert eitthvað yfir mig spenntur. Að fara mæta aftur á æfingar eftir vinnu og svona gefa allan tíma minn í þetta. En eftir að hafa talað oftar við hann og talað eins og við Aron auðvitað, þá leggst þetta mjög vel í mig og ég er bara mjög spenntur að byrja. Það er bara fyrsta æfing í dag og ég get ekki beðið eftir að mæta.“
Lengjudeild karla Afturelding Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Sjá meira