Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Þórarinn Þórarinsson skrifar 25. mars 2026 13:03 Jóhanna Ey, fulltrúi Byggðalistans í Skagafirði, vonast til þess að fyrirhuguð undirskriftasöfnun vegna menningarhúss á Sauðárkróki fá brautargegni á fundi sveitarstjórnar. Mynd/Arkís/Skagafjörður.is Sveitarstjórn Skagafjarðar fjallar í dag um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingar umdeilds menningarhúss á Sauðárkróki. Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalista, segist vona að söfnunin verði samþykkt átakalaust.
Tilkynning um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingar nýs menningarhúss á Sauðárkróki verður tekin til umfjöllunar á fundi sveitastjórnar Skagafjarðar í dag.„Ég vona bara að þau fái heimild til þess að fara af stað með undirskriftasöfnunina en mér finnst rosalega erfitt að lesa í það miðað við umfjöllun síðustu daga,“ segir Jóhanna Ey, fulltrúi Byggðalista, en tilkynningin um söfnunina er viðbragð við því að meirihlutinn felldi fyrir skömmu tillögu hennar um íbúakosningu um bygginguna samhliða sveitarstjórnarkosningunum 16. maí 2026. Rifist um allar byggingar „Sagan segir að hér sé rifist um allar byggingar og svo lengi að oft fari milljóna undirbúningsvinna í súginn. Til dæmis félagsheimili og nú síðast tjaldsvæði. Meira að segja umferðarljósin urðu að miklu hitamáli hér,“ segir einn viðmælenda Vísis á Króknum og bætir við að umræðan sé ýkjulaust bæði hörð og heit.Þrátt fyrir tilfinningahitastig deilunnar segjast viðmælendur Vísis ekki hafa orðið varir við að deilan hafi valdið vinslitum, klofið fjölskyldur eða að öskur gangi á milli fólks á förnum vegi. Flest telja þau þó hag sínum best borgið með því að tjá sig ekki undir nafni. „Það er rosalega mikil óánægja með þetta hérna í Skagafirði og bara verið að reyna að rusla þessu í gegn fyrir kosningar,“ segir annar. „Forgangsröðunin á þessu er alveg út úr kú. Það er örugglega enginn á móti menningarhúsi sem slíku heldur bara á móti því hvernig þessu er háttað og staðið að þessu.“ Jákvætt að safna undirskriftum „Mér fannst ég verða að gera eitthvað til að koma sjónarmiðum mínum og umræðunni í sveitarfélaginu á framfæri þegar ég frétti að meirihluti sveitarstjórnar hefði hafnað tillögu um að í vor yrði efnt til íbúakosningar,“ sagði Daniel Þór Gunnarsson við Vísi í gær.Hann fer fyrir hópnum sem vill fara þessa leið til þess að lægja reiðiöldurnar í kringum bygginguna og sagðist ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að undirskriftasöfnunin fari fram. Annað væri fásinna. „Þar sem ég get ekki séð að það muni hafa neitt annað en jákvæð áhrif á verkefnið og ímynd sveitarfélagsins að íbúar fái að segja sinn hug.“ Einar E. Einarsson, forseti bæjarstjórnar og oddviti Framsóknarflokksins, er mjög áfram um að framkvæmdir hefjist sem fyrst og eins og fram kom á Vísi um helgina hefur hann engar áhyggjur af fyrirhugaðri undirskriftasöfnun: „Nei, nei, nei. Ég myndi alls ekki segja það,“ sagði hann aðspurður. „Ég bara fullyrði það að meirihluti Skagfirðinga er hlynntur þessari framkvæmd.“ Nauðsyn ekki lúxus Eðli málsins samkvæmt hefur héraðsfréttavefritið Feykir.is orðið vettvangur skoðanaskipta og þar steig síðast fram Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, í aðsendri grein þar sem hún leggur áherslu á hversu mikilvæg húsbyggingin sé fyrir safnið. „Í umræðum um menningarhúsið er látið í veðri vaka að um „lúxusframkvæmd“ sé að ræða. Svo er alls ekki - um er að ræða bráðnauðsynlega framkvæmd,“ segir hún. „Það sem ég hef saknað í allri umræðu um menningarhúsið og að falla skuli frá þeim áformum, þrátt fyrir gríðarmikla vinnu og tilkostnað undanfarinna ára, er: Ef falla á frá þessum áformum verður að svara einni einfaldri spurningu: Hver er raunhæf lausn við brýnum vanda safnanna – og hvenær? Þar virðist fátt um svör.“ Björt framtíðarsýn Einar og félagar hans í meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafa einnig varið fyrirhugaða framkvæmd á Feyki, segja hana komna í fastan farveg með áætluðum verklokum í lok árs 2027.„Það er okkar von að samfélagið í Skagafirði sameinist um þessa framkvæmd og horfi björtum augum til framtíðar sem er full af tækifærum,“ skrifar meirihlutafólkið. Menningarhúsinu, eins og það birtist í tillögunum, er ætlað að verða lifandi vettvangur sviðslista í sveitarfélaginu.Mynd/Arkís Fulltrúar Byggðalistans halda hinni hliðinni til haga á sama vettvangi með kröfunni um íbúakosningu þannig að tryggja megi „að ákvörðun um framhald verkefnisins byggi á skýru og óumdeilanlegu lýðræðislegu umboði íbúa og að niðurstaðan verði farsæl fyrir samfélagið í heild og stuðli að sátt um niðurstöðu málsins.“Lýðræðið bjóði upp á þessa leið. „Spurningin er einfaldlega hvort íbúar Skagafjarðar vilji nýta sér hana.“ „Hvurslags pakk er þetta eiginlega?“ Eðli málsins samkvæmt hefur tilfinningaþrungin umræðan vitaskuld ratað á samfélagsmiðlanna og á Facebook hafa Ólafur Helgi Jóhannesson og Eyþór Fannar Sveinsson helst vakið athylgi fyrir vasklega framgöngu. Annar með en hinn á móti. Ólafur Helgi kvað sér síðast hljóðs í fyrradag og vék einmitt að áðurnefndum deilum um tjaldstæði og félagsheimili:„Það er eins og mig grunaði áður það væri einhver hópur manna sem gengju í það að berjast á móti menningarhúsi hér á Krók. Af hverju er ég ekki hissa. Það virðist vera hópur fólks sem er á móti öllu sem minnst er á að gera hér á Krók,“ skrifar hann og heldur áfram:„Tjaldstæðið er gott dæmi um þetta og nú félagsheimilið og menningarhúsið títtnefnda. Fólk fer alveg upp á afturlappirnar og öskrar fokvont að einhver skuli ekki vera á móti þessu. Á að halda svona áfram hvurslags pakk er þetta eiginlega. Það lætur sér meira að segja annt um skólplagnir í gamla bænum þó það viti ekkert um hvað það er að tala.“ Heit kol á ónýtu grilli Eyþór Fannar grípur til skáldlegs líkingamáls í málflutningi sínum þar sem hann beinir grillteinum sínum að kostnaðaráætlun framkvæmdarinnar sem hann líkir við grillveislu sem geti ekki annað en endað með ósköpum.Hann dregur upp mynd af ímyndaðri grillveislu sem tveir vinir bjóða til. Gert er ráð fyrir 100 gestum og vinurinn óskar þess að semja strax um kostnaðinn fyrir sinn hlut.„Hann býður núvirði 60 kjötskammta fyrir þennan fjölda og restina greiðir þú, 40 skammta og annan kostnað. Boð þetta hljómar nokkuð vel svo þú samþykkir það án umhugsunar.“ Eyþór Fannar Sveinsson spinnur dæmisögu af grillveisluá Facebook sem hann tengir við hækkun framkvæmdakostnaðar við nýja menningarhúsið. Tafir verða á veisluhöldunum og loks þegar á að láta til skarar skríða kemur í ljós að gestafjöldinn er kominn upp í 111. „Til að halda kostnaði í lágmarki er gamla kolagrillið rifið fram. Við nánari skoðun er botninn farinn úr því og þú neyðist til að leysa málið með kaupum á nýju gasgrilli,“ skrifar Eyþór og heldur áfram að telja upp óvissuþætti sem klikka.„Grillveislan í þessari sögu er hið nýja Menningarhús okkar Skagfirðinga, sem til stendur að reisa hér á Sauðárkróki,“ skrifar hann og vinurinn góði er þá vitaskuld íslenska ríkið sem „hefur sína aðkomu að verkefninu, en sá þáttur er hins vegar misskilinn að einhverju leyti út í samfélaginu.“Eyþór leggur, máli sínu til stuðnings, fram heilmikla útreikninga með uppreiknuðum kostnaði með til dæmis tilliti til hækkunar byggingarvísitölu og klykkir út með því að „því miður er það staðan í dag að við erum að fara að halda grillveislu með botnlausu kolagrilli…“
Skagafjörður Menning Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira