Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 25. mars 2026 19:31 Búist er við að ýmis starfsemi í samfélaginu liggi í lamasessi á morgun. Vísir/Vilhelm Biðlað er til foreldra á höfuðborgarsvæðinu að hafa börn sín heima meðan óveður ríður yfir landshlutann. Töluvert rask verður á skólastarfi en skólar og leikskólar verða opnir til þess að framlínustarfsmenn geti sinnt störfum sínum.
Frá þessu greindi Þóra Kristín Ásgeirsdóttir deildarstjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu í kvöldfréttum. Hún biðlar til allra sem geta að halda sig heima fyrir og vinna heiman frá ef unnt er. Skólastarf hefst á ný þegar viðvörununum verður aflétt. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs verður í gildi milli klukkan sjö og eitt og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Búast má við að veðrið verði orðið skaplegt strax eftir hádegi en í tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins er fólk beðið um að bíða með ferðir þar til í fyrsta lagi eftir hádegi. Með því móti gefist líka betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð. Athygli er vakin á því að vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu verður lokað kl. 4 í nótt og þangað til að veðrið gengur yfir, meðal annars Vesturlandsvegi um Kjalarnes og Hellisheiði og þá er óvissustig á Reykjanesbraut frá kl. 6 í fyrramálið. Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar. Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun. Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.
Veður Reykjavík Almannavarnir Grunnskólar Skóla- og menntamál Leikskólar Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira