Viðskipti innlent

Kemi og Fálkinn Ísmar sam­einast

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi,
Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi, Aðsend

Hluthafar Kemi og Fálkans Ísmars hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Sameinað félag verður í eigu Sjávarsýnar, Hermanns Guðmundssonar og Freyju framtakssjóðs.

Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og áreiðanleikakönnun á báðum félögum samkvæmt tilkynningu frá félögunum. Verði af sameiningu er gert ráð fyrir að starfsemi Kemi verði áfram á Tunguhálsi 10, Reykjavík og starfsemi Fálkans Ísmars á Dalvegi 10-14, Kópavogi.

„Þekking og reynsla starfsfólks hefur verið lykillinn að velgengni beggja félaga síðustu ár og verður áfram grunnurinn að enn frekari árangri hjá sameinuðu félagi. Sameiningin mun skapa tækifæri til að efla sölustarf og útvíkka vöruframboð með það að markmiði að byggja upp leiðandi sölu- og þjónustufyrirtæki með rekstrar- og fjárfestingavörur fyrir íslenskan iðnað,” segir Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi, samkvæmt tilkynningu.

Fálkinn og Ísmar sameinuðust undir heitinu Fálkinn Ísmar árið 2021. Kemi keypti rekstur Poulsen árið 2022. Samanlögð velta Kemi og Fálkans Ísmars var tæplega sex milljarðar króna árið 2025 og hjá sameinuðu félagi munu starfa tæplega hundrað manns.

Í tilkynningu kemur fram að fyrirtækin starfi bæði á fyrirtækjamarkaði og að þau þjóni breiðum hópi viðskiptavina á sviði iðnaðar í íslensku samfélagi. Kjarninn í starfsemi Fálkans Ísmars sé sala og þjónusta á tækni-, raf- og vélbúnaði m.a. til verktaka, gagnavera, sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja, opinberra aðila, orkufyrirtækja, stóriðju og verkstæða. Kemi leggur áherslu á valda vöruflokka s.s. olíu- og efnavörur, bílavarahluti, öryggisvörur, landbúnaðarvörur, verkfæri og tæki ásamt því að vera umsvifamikið í innflutningi á bílrúðum og reka tvö bílrúðuverkstæði undir merkjum Poulsen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×