Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2026 16:24 Sjálfan sem ferðamaðurinn freistaði þess að taka með stuðlabergið í bakgrunni hefði getað reynst honum afar dýrkeypt. Adolf Ingi Erlingsson Hópur ferðamanna var hætt kominn í Reynisfjöru síðdegis á föstudag þegar kraftmikil alda gekk yfir fjöruna. Leiðsögumaður sem myndaði atvikið segir ferðamenn á eigin vegum oft skjóta skollaeyrum við viðvörunum leiðsögumanna á svæðinu. „
Í síðustu viku rak ég hreinlega burt hjón sem voru þarna með tvö börn, sagði þeim að ég gæti ekki horft upp á börn þarna. Látum það vera að fólk vilji leggja sjálft sig í hættu,“ segir Adolf Ingi Erlingsson leiðsögumaður og fyrrverandi íþróttafréttamaður í samtali við fréttastofu. Hann birti myndband á Facebook á föstudag sem hann titlaði „Fávitar í Reynisfjöru“ þar sem ferðamenn í fjörunni verða undir öldu. Á tveimur dögum hefur verið horft á myndbandið 230 þúsund sinnum. „Ég er þarna með hóp þegar þetta gerist, ég brýni alltaf fyrir mínu fólki að fara varlega og passa að allt sé í lagi. En þeir sem eru á eigin vegum hlusta oft ekki á neitt sem þeim er sagt. Þetta er bara enn eitt dæmið um það,“ segir Adolf Ingi. Hann segir rosalegt að horfa upp á fólk sem geri sér enga grein fyrir í hve mikilli hættu það er. Ferðamönnum finnist jafnvel fyndið að verða fyrir öldu á svæðinu. Adolf Ingi lýsir miklum öldugangi í Reynisfjöru umræddan föstudag. „Öldurnar voru rosalegar á köflum. Ég sá þær skella á stuðlaberginu eins og spreningingar og þær náðu langt upp á klettinn. Fólk á nú að geta sagt sér að þetta er dálítið hættulegt,“ segir Adolf Ingi en aðspurður segist hann ekki hafa heyrt af slysum á fólki umræddan dag. Ferðamennirnir í myndbandinu eru langt í frá þeir fyrstu til að fara óvarlega í Reynisfjöru. Fjölmörg myndskeið af fólki hættulega nálægt fjörumálinu er að finna á samfélags- og fréttamiðlum. Banaslys varð um verslunarmannahelgina í fyrra þegar níu ára þýsk stúlka varð öldunni að bráð. Faðir hennar og systir voru einnig hætt komin. Banaslysið var það fyrsta síðan auknar öryggisráðstafanir voru gerðar á svæðinu í framhaldi af banaslysum í fjörunni fyrir um fjórum árum síðan. Þá var meðal annars aukið við upplýsingagjöf og merkingar, settar upp öryggismyndavélar og ljósaskilti sem gefur til kynna hverjar aðstæður eru hverju sinni með tilliti til ölduhæðar, og hversu langt niður í fjöruna er óhætt að fara.
Reynisfjara Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Mýrdalshreppur Tengdar fréttir Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Mikið hefur verið um að ferðamenn hafi farið niður í Reynisfjöru í morgun – framhjá hliðinu og viðvörunarskiltum – þrátt fyrir að rauða ljósið hafi logað. Landeigandi segir fólk með því vera að taka mjög meðvitaða ákvörðun um að setja sig í hættu. 26. ágúst 2025 13:56 Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Ferðamenn í Reynisfjöru segjast lítið hafa vitað um hætturnar áður en þeir heimsóttu fjöruna. Þeir kalla eftir skýrari leiðbeiningum og fleiri skiltum. Hjón sem urðu vitni að banaslysinu telja að lífvörður á staðnum myndi aðeins vekja falska öryggistilfinningu. 8. ágúst 2025 19:00 Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stærðarinnar alda skall á bílastæðið við Reynisfjöru og skolaði grjóti á land. Bílastæðinu hefur verið lokað vegna flóðsins og gestur sagði hnullunga hafa skollið á bílum. 15. mars 2026 14:38 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira
Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Mikið hefur verið um að ferðamenn hafi farið niður í Reynisfjöru í morgun – framhjá hliðinu og viðvörunarskiltum – þrátt fyrir að rauða ljósið hafi logað. Landeigandi segir fólk með því vera að taka mjög meðvitaða ákvörðun um að setja sig í hættu. 26. ágúst 2025 13:56
Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Ferðamenn í Reynisfjöru segjast lítið hafa vitað um hætturnar áður en þeir heimsóttu fjöruna. Þeir kalla eftir skýrari leiðbeiningum og fleiri skiltum. Hjón sem urðu vitni að banaslysinu telja að lífvörður á staðnum myndi aðeins vekja falska öryggistilfinningu. 8. ágúst 2025 19:00
Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stærðarinnar alda skall á bílastæðið við Reynisfjöru og skolaði grjóti á land. Bílastæðinu hefur verið lokað vegna flóðsins og gestur sagði hnullunga hafa skollið á bílum. 15. mars 2026 14:38