„Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. apríl 2026 11:03 Þórsarar fagna með stuðningsmönnum sínum eftir sigurinn á Þrótturum í lokaumferð Lengjudeildarinnar í fyrra. Með sigrinum tryggði Þór sér sæti í Bestu deildinni eftir langa fjarveru. vísir/ernir Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, hefur ágætis tilfinningu fyrir nýliðum Þórs fyrir tímabilið. Hann telur þá hafa gert vel á félagaskiptamarkaðnum og miðja liðsins sé sterk.
Þór er spáð 10. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Þór vann Lengjudeildina í fyrra undir stjórn Sigurðar Heiðars Höskuldssonar og tryggði sér þar með sæti í Bestu deildinni þar sem liðið hefur ekki leikið síðan 2014. Albert er spenntur fyrir því að fá Þórsara aftur í deild þeirra bestu. „Mér líst virkilega vel á það. Flestir áttu von á að sjá það gerast í hitteðfyrra. Það tókst ekki. Svo vorum þeir ekkert með í umræðunni í fyrra en Siggi Höskulds reif þetta lið upp og ég er mjög spenntur að sjá Þórsarana í efstu deild loksins,“ sagði Albert er hann var beðinn um að rýna í lið Þórs. Klippa: Besta-spáin 2026 - 10. sæti „Styrkleiki Þórsliðsins er á miðsvæðinu. Þeir eru með góða breidd þar. Það var klókt að fá Bjarna Guðjón [Brynjólfsson] aftur heim. Einar [Freyr Halldórsson] er virkilega efnilegur leikmaður og það verður spennandi að fylgjast með honum í sumar. Og Greco [Christian Jakobsen] er öflugur leikmaður sem getur líka spilað frammi. Varðandi veikleika þá var Aron Birkir [Stefánsson] frábær í markinu í fyrra en átti slæmt tímabil í hitteðfyrra. Hann þarf að hitta á gott tímabil í ár. Svo er spurning með öftustu línu.“ En hvað geta Þórsarar gert í Bestu deildinni í sumar? „Bara tryggja sér sæti í deildinni. Ég held að það sé bara markmið númer eitt, tvö og þrjú. Auðvitað geta þeir barist um Forsetabikarinn ef allt gengur upp. En hingað til er ég búinn að vera þokkalega sáttur með leikmannagluggann hjá þeim og ég er bara spenntur fyrir Þórsurum,“ sagði Albert. Þór sækir Val heim í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Fleiri fréttir Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Sjá meira