Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 07:32 Elin Nordegren og Tiger Woods voru gift í sex ár. getty/Nick Laham Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona Tigers Woods, hefur áhyggjur af kylfingnum eftir að hann var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum.
Tiger velti bíl sínum þegar hann reyndi að taka fram úr annarri bifreið í Flórída á föstudaginn. Hann var handtekinn eftir að hafa sýnt merki þess að vera undir áhrifum. Tiger neitaði að skila þvagprufu og var ákærður fyrir akstur undir áhrifum. Samkvæmt heimildum People hefur Nordegren talsverðar áhyggjur af Tiger eftir bílslysið. Þau eiga tvö börn saman, hina átján ára Sam og hinn sautján ára Charlie. Heimildarmaður People segir að Nordegren óski Tiger alls hins besta og vonist til að hann setji heilsuna í forgang svo hann geti verið til staðar fyrir börnin sín. Bílslysið á föstudaginn er það fjórða sem Tiger verður valdur af. Það fyrsta var 2009 en þá hrundi líf kylfingsins algjörlega. Upp komst um framhjáhald hans og í kjölfarið skildu þau Nordegren. Tiger hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin ár og þátttaka hans á mótum hefur verið stopul. Hann sneri þó aftur á golfvöllinn í síðustu viku þegar hann lék með liði sínu, Jupiter Links Golf Club, í úrslitum TGL-deildarinnar. Ekki var um neina draumaendurkomu hjá Tiger að ræða því lið hans steinlá fyrir Los Angeles Golf Club, 9-2. Eftir leikinn útilokaði Tiger ekki að taka þátt á Masters sem fer fram 9.-12. apríl næstkomandi. Eftir nýjustu tíðindi af hinum fimmtuga Tiger verður þó að teljast ólíklegt að hann verði með á þessu fyrst risamóti ársins. Síðasti sigur Tigers á risamóti, og sá eini eftir atburðina örlagaríku 2009, var á Masters 2019.
Golf Bílslys Tigers Woods Tengdar fréttir Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. 30. mars 2026 19:46 Mest lesið Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Enski boltinn Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Íslenski boltinn Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Enski boltinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Enski boltinn Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Fótbolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Enski boltinn „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Fleiri fréttir „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ „Við erum alltaf að gefa í“ „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Nær Spieth loksins að loka hringnum? Tveir Íslendingar á meðal fimm efstu í Danmörku Drifkrafturinn hjá McIlroy meiri eftir tímamótasigur Gunnlaugur mun aftur keppa á sterkasta áhugamannamóti í heimi DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Landsmót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann Sjá meira
Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. 30. mars 2026 19:46