Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 1. apríl 2026 12:58 Bogi Nils Bogason kannar kaup á dótturfélagi play sáluga á Möltu. Hann segir að það gæti eflt félagið. Ekki sé gert ráð fyrir fækkun starfsfólks gangi kaupin eftir. Icelandair kannar kaup á tæplega helmingshlut í starfsemi Fly Play á Möltu. Forstjórinn segir að takist kaupin muni það efla starfsemi félagsins. Ekki sé gert ráð fyrir fækkun starfsfólks hér á landi. Þrotabú Play mun fá tiltekna hlutdeild í fyrirhuguðum viðskiptum gangi kaupin eftir.
Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var dótturfélag Play sem fór í þrot á síðasta ári og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir að þeir sem halda á félaginu í dag hafi haft samband. „Með slíkum kaupum erum við að búa til ákveðinn sveigjanleika og frekari tækifæri fyrir okkar starfsemi. Til dæmis loftleið í leiguflugi okkar sem gengur mjög vel og er mikilvægur þáttur í okkar starfsemi. Ef þetta gengur í gegn erum við komin með fleiri vörur í búðaborðið,“ segir Bogi. Aðspurður um hvort að Icelandair hyggist ráða flugáhafnir eða starfsfólk í þjónustuver á Möltu fari kaupin í gegn svarar Bogi: „Varðandi þjónustuver höfum við verið með slíka starfsemi hér heima og erlendis. Það er engin breyting fyrirhuguð varðandi það. Hvað varðar áhafnir þá er starfsemi okkar fyrst og fremst hér á landi og verður það áfram.“ Engar fækkanir fyrirhugaðar Ekki sé því fyrirhugað að fækka starfsfólki hér á landi fari kaupin í gegn. „Við sjáum það ekki í stöðunni núna að starfsfólki verði fækkað. Við erum að fara í gegnum breytingar á flotanum okkar núna. Við erum að taka inn nýjar vélar og út fara eldri vélar. Það skapast hugsanlega tækifæri hvað það varðar, þ.e. að aðgreina flotann betur sem skilar sér í einfaldari rekstri og hagræðingu. En þetta er allt á frumstigi og viðræður að hefjast,“ segir Bogi. Bogi segir að enn sé ekki byrjað að ræða um kaupverð. Fremur sé þó talað um verð í milljónum en milljörðum króna. „Viðræðurnar munu taka einhvern tíma, mögulega einhverjar vikur. Ég get ekki gefið neitt upp um verðið á þessu stigi,“ segir Bogi. Þrotabúið fær sinn skerf Arnar Þór Stefánsson skiptastjóri þrotabús Fly Play staðfestir að drög að samkomulagi liggi fyrir við skuldabréfaeigendur varðandi dótturfélagið á Möltu. Samkvæmt því muni þrotabúið meðal annars fá tiltekna hlutdeild í ávinningi af fyrirhuguðum viðskiptum. Skiptastjóri hafi metið það svo að rétt sé að freista þess að gera slíkt samkomulag til hagsbóta fyrir búið fremur en leysa úr ágreiningi fyrir dómi. Samkomulagið verði til umfjöllunar á skiptafundi í þrotabúinu sem haldinn verði seinnipart mánaðarins.
Icelandair Gjaldþrot Play Samgöngur Fréttir af flugi Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira