Körfubolti

Martin með bakið upp við vegg

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Alba Berlin þarf að vinna Unicaja á heimavelli í næstu viku. 
Alba Berlin þarf að vinna Unicaja á heimavelli í næstu viku.  Tolga Adanali/Euroleague Basketball via Getty Images

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin eru komnir með bakið upp við vegg eftir 72-69 tap í fyrsta leik gegn Unicaja í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Heimamenn fram úr í upphafi fjórða leikhluta og náðu forystunni. Alba náði hins vegar að jafna undir lokin, en heimamenn skelltu í lás í næstu sóknum og fögnuðu sigri.

Martin var manna öflugastur hjá Alba Berlin, með 9 stig, 9 stoðsendingar og 3 fráköst. Jack Kayil var hins vegar stigahæstur með 19 stig fyrir Alba Berlin.

Liðin mætast aftur í Berlín eftir viku og Alba þarf sigur í þeim leik til að knýja fram oddaleik í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×