Golf

Tiger var hissa á hand­tökunni og hringdi í Trump for­seta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér má sjá myndina sem var tekin af Tiger Woods á lögreglustöðinni.
Hér má sjá myndina sem var tekin af Tiger Woods á lögreglustöðinni. Getty/Martin County Sheriff

Bandaríska lögreglan hefur birt myndbandsupptökur frá handtöku Tiger Woods. Golfstjarnan sagðist hafa talað í síma við Donald Trump forseta eftir slysið.

Golfstjarnan var handtekin föstudaginn fyrir viku grunuð um akstur undir áhrifum í bílslysi nálægt heimili sínu í Suður-Flórída. Woods slapp ómeiddur frá atvikinu og enginn annar slasaðist.

Nú hefur myndband úr líkamsmyndavél lögreglumanns við handtökuna verið birt. Þar kemur fram að stuttu eftir slysið segir Woods lögreglunni að hann hafi talað við forsetann, áður en hann lýsir yfir undrun þegar hann er handtekinn.

„Ég ætla bara að halda þér hérna hjá okkur, vinsamlegast,“ sagði lögreglumaður við golfstjörnuna á meðan lögreglan rannsakaði vettvanginn.

„Já, ég var rétt í þessu að tala við forsetann,“ svaraði Woods, á meðan hann veifaði símanum og gekk aftur í átt að lögreglumanninum.

Kallar Tiger „mjög náinn vin“

Ekki er vitað hvaða forseta Woods er að tala um. Donald Trump sagði hins vegar við New York Post fyrr í vikunni að hann hefði talað við Woods eftir slysið. Forseti Bandaríkjanna hefur einnig áður kallað Tiger Woods „mjög náinn vin“.

Myndbandsupptaka lögreglunnar sýnir síðan að fimmtugi maðurinn tekur áfengispróf og er settur í handjárn.

„Á þessum tímapunkti tel ég að eðlileg starfsgeta þín sé skert. Og þú ert undir áhrifum óþekkts efnis, svo nú ert þú handtekinn fyrir akstur undir áhrifum,“ sagði lögreglumaðurinn við Woods.

„Er ég handtekinn?“

„Er ég handtekinn?“ spyr greinilega undrandi Woods, á meðan hendur hans eru settar í handjárn.

Woods sagði yfirvöldum að hann hefði verið að horfa á símann sinn og skipta um útvarpsstöð þegar Land Rover-bíll hans, sem var á ofsahraða, rakst aftan á vörubíl og valt á hliðina á íbúðagötu á Jupiter Island. Enginn slasaðist í árekstrinum sem varð síðdegis þann 27. mars.

„Ég leit niður á símann minn og allt í einu, búmm,“ sagði Woods við lögreglumann þar sem hann kraup á grasflöt fyrir handtökuna.

Þegar lögreglan kom á staðinn á Woods að hafa sýnt greinileg merki um að vera undir áhrifum. Woods reyndist ekki vera með áfengi í blóðinu en lögreglan telur að fimmtugi maðurinn gæti hafa verið undir áhrifum lyfja eða annarra efna. Samkvæmt AFP fundust tvær verkjatöflur með hýdrókódoni þegar Woods var handtekinn.

Woods neitaði að gefa þvagsýni á staðnum.

Á laugardagsmorgun var Woods sleppt gegn tryggingu fyrir lægstu upphæð sem lög leyfa. Í kjölfarið hefur hann birt yfirlýsingu þar sem hann tilkynnir að hann muni taka sér hlé frá sviðsljósinu til að fara í meðferð og einbeita sér að eigin heilsu eftir slysið.

Woods, sem hikstaði við yfirheyrsluna, hreyfði höfuðið stöðugt í einu af edrúprófunum og lögreglumenn þurftu að segja honum nokkrum sinnum að halda í kyrru, samkvæmt handtökuskýrslunni.

Þessi fimmtánfaldi risamótssigurvegari var einnig einn af helstu kandídötunum í fyrirliðahlutverkið fyrir lið Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum 2027. Hlutverki sem hann hefur nú hafnað, líklega vegna þessa máls.

„Ég stíg til hliðar um tíma til að leita mér meðferðar og einbeita mér að heilsu minni,“ sagði hann áður í yfirlýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×